Héðinn að tafli
Héðinn að tafli á Íslandsmótinu í Ákureyri. Mynd: Sigurður Arnarson.

Héðinn Steingrímsson gerði jafntefli í báðum skákum gærdagins á NM í skák í Finnlandi og hefur 4½ vinning eftir 6 umferðir.  Aðeins hálfum vinningi á eftir efstu mönnum. Tvær umferðir fara fram í dag.

NM í skák

Fimmta og sjötta umferð fóru fram í gær.

Héðinn Steingrímsson (2513) gerði jafntefli við finnsku alþjóðlegu meistarana Mika Karttunen (2484) og Toivo Keinanen (2477).

Héðinn hefur 4½ vinning og er í 9.-19. sæti. Hálfum vinningi á eftir efstu mönnum.

Sjöunda umferð fer fram í dag. Þá teflir Héðinn við finnska FIDE-meistarann Pekka Köykka (2361). Umferðin hefst kl. 9.

Norðurlandamótið í skák fer fram í Jyväskylä í Finnlandi dagana 18.-24. júlí. Mótið er jafnframt alþjóðlega mótið Heart of Finland og er opið öðrum en Norðurlandabúum. Mótið er haldið í Finnlandi í tilefni af 100 afmæli sambandsins. Þátt taka 138 skákmenn frá 14 löndum. Þar af eru 10 stórmeistarar og 9 alþjóðlegir meistarar. Tefldar eru 9 umferðir.  Héðinn er áttundi í stigaröð keppenda og næststigahæstur Norðurlandabúa.

Björgvin Jónas Hauksson (1739) gekk vel í gær og innbyrti 1½ vinning. Hann hefur 2 vinninga.

Ciudad de Sevilla

Sjötta umferð fór fram í gær.

Alexander Oliver Mai (2159) tapaði í gær fyrir spænska alþjóðlega meistaranum Juan Plazuelo Pascual (2448). Alex hefur 4 vinninga.

Þátt taka 177 skákmenn frá 20 löndum og þar af eru 6 stórmeistarar og 19 alþjóðlegir meistarar. Mótið fer fram 16.-23. júlí. Tefldar eru 9 umferðir.

Czech Open

Gauti Páll Jónsson (2043) endaði með 5 vinninga á atskákmóti Czech Open.

Sjálft aðalmótið hefst í dag. Fjórir íslenskir skákmenn taka þátt.

- Auglýsing -