Gauti að tafli á HSG-mótnu. Mynd: Heimasíða mótsins.

Czech Open

Gauti Páll Jónsson (2071) gerði jafntefli við tékkneska FIDE-meistarann Marek Mica (2304) í fimmtu umferð sem fram fór í dag. Gauti hefur 2½ vinning þrátt fyrir að hafa teflt við titilhafa í öllum umferðum.

Feðginin Helgi Pétur Gunnarsson (1744) og Iðunn Helgadóttir (1508) taka þátt í b-flokki. Þau unnu bæði í dag!

Andorra Open

Hart dæmi. Alexander Oliver Mai (2159) tekur þátt. Hann hefur 1 vinning eftir tvær umferðir.

146 keppendur frá 22 löndum taka þátt. Þar af 9 stórmeistarar og 24 alþjóðlegir meistarar. Mótið fer fram 24.-31. júlí.

Alex er nr. 64 í stigaröð keppenda.

 

 

- Auglýsing -