Margeir Pétursson að tafli.

Margeir Pétursson hefur tekið sæti í landsliði Íslands sem teflir á Ólympíuskákmótinu í Chennai.

Vignir Vatnar Stefánsson gat ekki farið með landsliðshópnum til Indlands sem hann var greindur með Covid í PCR-prófi fyrir brottför íslenska hópsins.

Margeir Pétursson verður teflandi liðsstjóri. Þess má geta að Margeir tefldi fyrst á ólympíuskákmótinu 1976 og tefldi síðast árið 1996 eða fyrir rúmum aldarfjórðungi!

- Auglýsing -