Ólympíuskákmótið hefst 29. júlí í Chennai á Indlandi. Ísland sendir lið í opnum flokki sem og í kvennaflokki. Fram að móti munum við fjalla um ólympíufarana – einn á dag!
Í dag kynnum við til leiks Helga Áss Grétarsson sem teflir á sínum sjötta ólympíuskákmóti.
Nafn
Helgi Áss Grétarsson.
Félag
Taflfélag Reykjavíkur.
Aldur
45 ára
Uppáhaldsskákmaður og skákkona?
Alexander Aljékín og Judit Polgar.
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum, líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Ég tefldi á tveim alþjóðlegum skákmótum nýverið og næstu dagar verða nýttir til að auka andlegan og líkamlegan styrk.
Hvað eiga Indverjar marga stórmeistara? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð!
64
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
5
Mun ManU ná meistaradeildarsæti án Christano Ronaldo?
Veistu hvað, ég held bara ekki
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Bandaríkin í opnum flokki og Indverjar í kvennaflokki.
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Heimildarmynd um Ninu Simone.
Mun Carlsen tefla heimsmeistaraeinvígi við Nepo á næsta ári?
Já
Minnistæðasta skák á Ólympíuskákmóti:
Sóknarsigur gegn armenska stjórmeistaranum Gabriel Sargissjan í Bled árið 2002.
Hvítur á leik
Hvernig finnst þér indverskur matur?
Góður
Hverjum spáir þú sigri í forsetakosningum FIDE?
Dvorkovich
Þekktasti Indverjinn sem þú veist um sem ekki er skákmaður?
Ghandi er traust ágiskun.
Með hverjum þremur (lífs eða lifnum) skákmönnum myndir þú vilja eiga kvöldmáltíð með og af hverju?
Alexander Aljékín til að ræða um útreikninga í skák og hvernig sækja eigi stíft til sigurs
Kateryna Lagno til að ræða um stríðið í Úkraínu og hvernig eigi að tefla hraðskák
Paul Keres til að ræða um hvernig alltaf sé að lenda í öðru sæti og hvernig tefla eigi endatöfl
Ólympíufararnir
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (opinn)
- GM Hannes Hlífar Stefánsson (opinn)
- GM Helgi Áss Grétarsson (opinn)
- IM Vignir Vatnar Stefánsson (opinn)
- GM Guðmundur Kjartansson (opinn)
- WGM Lenka Ptácníková (kvenna)
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (kvenna)
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (kvenna)
- Tinna Kristín Finnbogadóttir (kvenna)
- WIM Lisseth Acevedo Méndez (kvenna)
- GM Margeir Pétursson (liðsstjóri)
- FM Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
- IA Omar Salama (skákstjóri)
- Gunnar Björnsson (FIDE-dindill)
















