Czech Open
Gauti Páll Jónsson (2071) endaði með 3½ vinning á Czech Open sem lauk í gær í Pardubice í Tékklandi. Fín frammistaða hjá Gauta sem tefldi við stigahærri andstæðinga í öllum umferðum. Hann hækkar um 32 á mótinu.
Feðginin Helgi Pétur Gunnarsson (1744) og Iðunn Helgadóttir (1508) tefldu í b-flokki. Helgi hlaut 4 vinninga en Iðunn 3 vinninga.
Andorra Open
Alexander Oliver Mai (2159) tekur þátt. Hann hefur 4 vinninga eftir 8 umferðir. Mótinu lýkur í dag.
146 keppendur frá 22 löndum taka þátt. Þar af 9 stórmeistarar og 24 alþjóðlegir meistarar. Mótið fer fram 24.-31. júlí.
Alex er nr. 64 í stigaröð keppenda.
Bamberg-Open
Stefán Bergsson (2134) tekur þátt. Hann hefur 4 vinninga eftir 6 umferðir. Mótinu lýkur í dag með 7. umferð
- Auglýsing -















