Önnur umferðin hefði getað farið betur hjá okkar liðum en liðsúrslitin voru þó eftir bókinni strangt til tekið. Hefjum leik í opna flokknum þar sem okkar menn öttu kappi við lið Mónakó.

Opinn flokkur – Mónakó

Guðmundur Kjartansson setti tóninn snemma. Hann tefldi af fítonskrafti gegn Karli Jóhanni sem réð ekkert við Taimanov árásina gegn Benoni. Gaman að sjá Guðmund tefla svona hvasst og hann hreinlega óð á kóng andstæðingsins og var fyrstur að klára sína skák. Mikilvægt að ná svona sigrum sem taka ekki of mikla orku. Guðmundur fer vel af stað.

Hannes var næstur að landa. Þrettánfaldi Íslandsmeistarinn hrifsaði frumkvæðið snemma og át peð. Hann hélt fast á því og hvítur náði aldrei að sanna neinar bætur og varð að leggja niður vopn og okkar lið komið í 2-0.

Þegar hér var komið við sögu var Hjörvar með vænlegt tafl og Margeir með stöðu sem hann gat ekki tapað og var bara að reyna að kreysta. Vinningur í viðureigninni var í höfn bara spurning hversu stór sigurinn yrði.

Það kom smá babb í bátinn þegar Hjörvar Steinn hreinlega gleymdi sér í vænlegri stöðu peði yfir og féll á tíma. Grátlegt og óþarft tap og staðan þá orðin 2-1

Margeir þurfti því að tryggja sigur í viðureigninni en sú niðurstaða var aldrei í hættu. Andstæðingur hans varðist vel og náði að halda jafnteflinu. Margeir fórnaði tveimur peðum fyrir stöðulegar bætur snemma í skákinni, vann fyrra peðið til baka og einungis virtist tímaspursmál hvenær seinna peðið kæmi í hús. Margeir reyndi að pína FIDE meistarann en varnirnar héldu í þetta skiptið.

Sigur með minnsta mun niðurstaðan en auðvitað var það aðallega útaf slysinu hjá Hjörvari. Alvöru verkefni í 3. umferðinni þegar liðið fer í „aðal salinn“ og etur kappi við Indland 3.

 

Kvennaflokkur – Slóvakía

Nánast ekkert gekk upp í þessari viðureign.  Einhverjir sénsar voru til að gera betur í nokkrum skákum sem sýnir að það þarf alltaf að vera á varðbergi fyrir þessum eina séns sem býðst yfirleitt í hverri skák!

Liss átti ekki sinn besta dag og tapaði á 4. borði. Bxd5 í 11. leik hefði gefið svörtum fína stöðu og jafnt tafl en eftir 13…Dc7?? vann hvítur mikilvægt peð og baráttan mjög erfið eftir það.

Skák Jóhönnu var næst að klárast. Jóhanna virtist lenda í smá beyglu eftir byrjunina en var að vinna sig út úr því þegar hún missti af góðum möguleika, 22…Rxb6!? og svartur jafnvel með betra tafl. Í staðinn missti svartur þráðinn og Repkova kláraði dæmið.

Hallgerður fékk ekki nógu góða stöðu úr byrjuninni þrátt fyrir fínan undirbúning gegn sinni uppáhaldsbyrjun. Svartur breytti útaf og Hallgerður fann ekki rétta framhaldið. Hvíta staðan var aðeins of „overextended“ og það kostaði liðsafla þó líklega hefði 21.Bd4 gert verkefnið erfiðara fyrir svartan.

Staðan 0-3 og Lenka hafði verið í erfiðri vörn alla skákina eftir að hafa tapað peði. Andstæðingurinn gaf það til baka á furðulegan hátt og skákin í jafnvægi. Í sameiginlegu tímahraki bauð andstæðingur Lenku jafntefli sem hún þáði. Fínt að sleppa við að láta „eggja sig“ þ.e. að tapa með núlli.

Stórt tap niðurstaðan 0,5-3,5. Þessi viðureign var alltaf að fara að verða erfið með þær slóvakísku 2-300 stigum hærri á hverju einasta borði. Okkar stelpur eiga hinsvegar mikið inni og ég og þær sjálfar gerðum kröfur á betri niðurstöðu.

Næsta verkefni í kvennaflokki er ungt lið Thailands sem er sýnd veiði en ekki gefin.

- Auglýsing -