Vignir braut upp lobbýdauðann í Uppsölum og tók þátt í hraðskákmóti og náði verðlaunasæti.

Íslenskir skákmenn sitja sem fyrr úti að tafli. Vignir Vatnar teflir í Uppsölum í Svíþjóð. Heilmir Freyr lauk þátttöku í gær í Mannheim og Gauti Páll, Adam og Jósef luku þátttöku á mótiTékklandi

Uppsala Chess Open

Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2445) tekur þátt í SM-flokki á alþjóðlegu móti í Uppsölum í Svíþjóð.

Í gær fór fram 6. og 7. umferð. Vignir hlaut 1½ vinning úr skákum gærdagsins. Í fyrri skákinni vann hann indversku skákkonunni Savitha Shri (2374). Í þeirri síðari gerði hann jafntefli við úkraíska stórmeistarann Li Min Peng (2501)

Vignir er efstur ásamt Li Min Peng með 5½ vinning.

Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Vignir teflir þá sænska FIDE-meistarann Bengt Lindberg (2370). Skákin verður sýnd beint og hefst útsending kl. 10.

Alls taka 10 skákmenn í mótinu sem fram fer 8.-14. ágúst. Vignir er þriðji í stigaröð keppenda.

Manheim IM

Alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2323) teflir í alþjóðlegu móti í Maheim í Svíþjóð.

Hilmir gerði jafntefli við norska FIDE-meistarann Jens Ingebretsen (2325). Hilmir náði sér ekki almennilega á strik á mótinu. Hann hlaut 3 vinninga og endaði í 6.-9. sæti.

Alls ttóku10 skákmenn þátt í mótinu sem fram fer 6.-12. ágúst. Hilmir var sjötti í stigaröð keppenda.

Summer Prague Open

Lokaumferðin fór fram í gær.

Gauti Páll Jónsson (2071) og Adam Omarsson (1837) tefla í a-flokki.

Gauti Páll gerði gott jafntefli við þýska FIDE-meistarann Karsten Hanch í lokaumferðinni. Adam Omarsson (1837) vann Tékkann Juraj Steiner (2005).  Gauti hlaut 5 vinninga og Andaði fékk 4 vinninga.

Jósef Omarsson (1617) teflir í b-flokki. Hann gerði jafntefli í lokaumferðinni og endaði með 4 vinninga.

Adam hækkaði um 23 stig fyrir frammistöðu sína.

Adam og Jósef halda nú til Olomuch þar sem þeir tefla á alþjóðlegu móti sem hefst í dag. Gauti fer til Zagreb þar sem hann tekur þátt í EM áhugamanna.

230 skákmenn frá 33 löndum tefldu í efsta flokki. Þar af eru 6 stórmeistarar.

- Auglýsing -