Vignir að tafli í Uppsölum2

Íslenskir skákmenn sitja sem fyrr úti að tafli. Vignir Vatnar teflir í Uppsölum í Svíþjóð. Gauti Páll hefur þátttöku í dag á EM áhugamanna í Zagreb og Adam og Jósef hófu í gær þátttöku Olomouc í Tékklandi

Uppsala Chess Open

Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2445) tekur þátt í SM-flokki á alþjóðlegu móti í Uppsölum í Svíþjóð.

Vignir gerði jafntefli við sænska FIDE-meistarann Bengt Lindberg (2370) í áttundu og næstsíðustu umferð fram fór í gær.

Vignir er í 2.-3. sæti með 6 vinninga.

Lokaumferðin fer fram í dag. Vignir mætir þá sænska stórmeistaranum Ralf Akesson (2427).

Alls taka 10 skákmenn í mótinu sem fram fer 8.-14. ágúst. Vignir er þriðji í stigaröð keppenda.

EM áhugamanna

EM áhugamanna fer fram í Zagreb í Króatíu dagana 14.-21. ágúst. Gauti Páll Jónsson (2071) teflir í flokki skákmanna með minna en 2300 skákstig.

Fyrsta umferð fer fram í dag. Gauti er nr. 24 í stigaröð 52 keppenda.

Olomouc Chess Summer 

Bræðurnir Adam (1837) og Jósef Omarssynir (1617) taka þátt í c-flokki Olomouc Chess Sumer.

Jósef gerði jafntefli í fyrstu umferð við stigaháan andstæðing (1992) en Adam tapaði.

Tvær umferðir fara fram í dag.

- Auglýsing -