Íslenskir skákmenn sitja sem fyrr úti að tafli. Vignir Vatnar lauk í gær þátttöku á móti í Uppsölum í Svíþjóð. Gauti Páll hóf í gær þátttöku á EM áhugamanna í Zagreb og Adam og Jósef tefla í Olomouc í Tékklandi

Uppsala Chess Open

Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2445) tekur þátt í SM-flokki á alþjóðlegu móti í Uppsölum í Svíþjóð.

Vignir tapaði fyrir sænska stórmeistaranum Ralf Akesson (2427) í níundu og síðustu umferð.

Vignir hlaut 6 vinninga og endaði í þriðja sæti. Hann hækkar um 8 stig fyrir frammistöðu sína.

Alls tóku 10 skákmenn í mótinu sem fram fór 8.-14. ágúst. Vignir var þriðji í stigaröð keppenda.

EM áhugamanna

EM áhugamanna fer fram í Zagreb í Króatíu dagana 14.-21. ágúst.

Gauti Páll Jónsson (2071) teflir í flokki skákmanna með minna en 2300 skákstig.

Gauti vann króatískan skákmann (1935) í fyrstu umferð í gær og teflir við annan heimamann (2192) í dag.

Gauti er nr. 23 í stigaröð 50 keppenda.

Olomouc Chess Summer 

Bræðurnir Adam (1837) og Jósef Omarssynir (1617) taka þátt í c-flokki Olomouc Chess Sumer sem fram fer 13.-20. ágúst.

Tvær umferðir fóru fram í gær. Adam hlaut hálfan vinning en Jósef einn vinning. Báðir hafa þeir einn vinning.

Fjórða umferð fer fram í dag.

- Auglýsing -