Íslenskir skákmenn sitja sem fyrr úti að tafli. Gauti Páll tekur þátttöku á EM áhugamanna í Zagreb og Adam og Jósef tefla í Olomouc í Tékklandi

EM áhugamanna

EM áhugamanna fer fram í Zagreb í Króatíu dagana 14.-21. ágúst. Gauti Páll Jónsson (2071) teflir í flokki skákmanna með minna en 2300 skákstig.

Gauti gerði jafntefli við sjötta stigahæsta keppenda mótsins, heimamanninn sterka Ivan Jujec (2192) í 2. umferð í gær. Gauti hefur 1½ vinning.

Tvær umferðir fara fram í dag og hófst sú fyrri kl. 7.

Gauti er nr. 23 í stigaröð 50 keppenda.

Olomouc Chess Summer 

Bræðurnir Adam (1837) og Jósef Omarssynir (1617) taka þátt í c-flokki Olomouc Chess Sumer sem fram fer 13.-20. ágúst.

Báðir unnu þeir stigalægri andstæðinga í 4. umferð sem fram fór í gær og hafa 2 vinninga.

Fimmta umferð fer fram í dag.

- Auglýsing -