Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2452), gerði jafntefli við sænska alþjóðlega meistarann Seo Jung Min (2516) í sjötta umferð Hit Open í Nova Gorcia í Slóveníu í gær.
Vignir er efstur með 4½ vinning og er efstur ásamt fimm öðrum. Sjöunda umferð fer fram í dag og hefst kl. 15. Þá teflir Vignir við enska alþjóðlega meistarann Jonah B Willow (2385).
98 keppendur frá 23 löndum taka þátt í flokki Vignis. Þar á meðal 9 stórmeistarar. Vignir er níundi í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 16.-22. september.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar Hefjast flestar kl. 15
——

Jósef Omarsson tekur þátt í HM ungmenna (u12) sem fram fer í Batumi í Georgíu 16.-27. september.
Hann gerði jafntefli við skákmann frá Kasakstan í 4. umferð í gær og hefur 1½ vinning.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 11)
- Auglýsing -