Á fjölmennri uppskeruhátíð Fjölnis í Keiluhöllinni voru þau Jóhann Arnar og Liss valin skákkarl og skákkona Fjölnis fyrir árið 2022. Jóhann Arnar var einn af nemendum Rimaskóla sem hóf að æfa skák á sínum fyrstu grunnskólaárum. Hann var í skáksveit skólans sem sigraði á Norðurlandamóti barnaskólasveita árið 2011 og í 2. sæti árin 2014 og 2015. Eftir að grunnskólagöngu lauk hóf Jóhann Arnar að leiðbeina á hinum vinsælu skákæfingum Fjölnis.
Á þessu ári hefur Jóhann Arnar verið mjög virkur á skákmótum hér á landi og erlendis. Hann var í 6 manna skáksveit Skákdeildar Fjölnis sem tefldi á EM félagsliða í Austurríki í sumar og vann sér inn fast sæti í A sveit Fjölnis sem teflir í Úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga.
Lisseth Acevedo Méndez landsliðskona Íslands í skák. Liss eins og hún er alltaf kölluð tefldi með íslenska kvennalandsliðinu á Ólympíuskákmótinu í Chennai á Indlandi nú í sumar og vann kvennaflokkinn á Alþjóðlega helgarskákmótinu Kvibergsspelen í Gautaborg nú í haust. Á því móti urðu Fjölniskonur í efstu þremur sætum kvennaflokks.


















