Skákhátíðin í Kragerö hófst í gær með fyrstu tveimur umferðunum. Alls taka 14 Íslendingar þátt í mótinu. Tíu í a-flokki og 4 í b-flokki.
Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2466) og kennarinn Stefán Bergsson (2170) eru efstir íslensku keppendanna með 1½ vinning.

FIDE-meistararnir Dagur Ragnarsson (2343) og Aleksandr, Domalchuk-Jonasson (2336), Benedikt Briem (2096) og Gauti Páll Jónsson (2047) hafa 1 vinning.

Stephan Briem (2141), Ingvar Wu Skarphéðinsson (1867), Lenka Ptácníková (2113) hafa ½ vinninga. Adam Omarsson (1843) er ekki kominn á blað.
Alls taka 102 skákmenn þátt í a-flokki.

Í b-flokki hafa Jósef Omarsson (1698), Iðunn Helgadóttir (1690) 1½ vinninga, Erlingur Jensson (1583) og Unnar Ingvarsson (!717) hafa 1 vinning
Alls taka 64 skákmenn þátt í b-flokki.
Tvær umferðir fara fram í dag og hefjast þær kl. 9 og 14:30.
- Heimasíða mótsins
- Facebook-síða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 9 og 14:30)
——-
Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2448) gerði jafntefli við króatíska FIDE-meistarann Davorin Bubalovic (2196) í sjöundu umferð sem fram fór í gær.
Margeir hefur 4 vinninga. Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag.
171 keppandi frá 29 löndum taka þátt í efstu flokknum. Þar af eru 9 stórmeistarar. Margeir er nr. 11 í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Engar beinar útsendingar















