Davíð og Lenka að tafli í gær. Mynd: DO.

Sjötta og næstsíðasta umferð Skákmóts öðlinga fór fram í gær. Stórmeistari kvenna, Lenka Ptácníková (2113) er efst með 5 vinninga eftir jafntefli við Davíð Kjartansson (2300). Davíð er í 2.-5. sæti ásamt Jóhanni H. Ragnarssyni (1901), Braga Halldórssyni (2075) og Haraldi Haraldssyni (1875).

Staðan á Chess-Results. 

Lokaumferðin fer fram á mánudagskvöldið. 

- Auglýsing -