Vignir Vatnar Stefánsson (2461) varð rétt í þessu sextándi stórmeistari Íslendinga! Hann vann lokaskákina á Arandjelovac Open í Serbíu í dag gegn gríska alþjóðlega meistaranum Dimitris Alexakis (2472) með svörtu í rosaskák að sögn Vignis. Alls fékk hann 7 vinninga á mótinu af 9 mögulegum.
Árangur hans samsvaraði 2608 skákstigum. Áður hafði hann náð tveimur öðrum áföngum. Öðrum áður í Serbíu og svo á móti á Írlandi. Einnig hefur hann náð 2500 skákstigum svo öllum formskilyri eru uppfyllt.
Vignir bíður þess eins að verða formlega útnefndur stórmeistari.
Alls tótu 48 skákmenn þátt frá 13 löndum. Þar af eru 13 stórmeistarar. Vignir er nr. 8 í stigaröð keppenda en Alexander er nr. 37.
- Auglýsing -












