Töluverð umfjöllun og viðtöl hafa verið tekin við sextánda stórmeistara Íslendinga, Vignir Vatnar Stefánsson aka GMVVXVI. Iðulega fer Vignir á kostum í þeim viðtölum sem tekin voru.
Vignir verður að sjálfsögðu meðal 400 keppenda á Reykjavíkurskákmótinu sem hefst 29. mars í Hörpu og verður í boði Kviku eignustýringar og Brims.
Ritstjóri hefur safnað viðtölunum saman á einum stað.
- MBL: „Það var eiginlega eina markmiðið“
- Vísir: „Þurfti eitthvað rugl á borðinu“
- RÚV: „Fólk kannast við mig í ræktinni út af skák“
- Fréttablaðið: „Alveg sama að ég sé orðinn stórmeistari, ég kann ekki neitt“
- Auglýsing -













