Jafntefli varð í 11. einvígisskákinni sem var ein sú stysta og leiðinlegasta til þessa. Engu að síður er spennan mikil nú þegar aðeins þrjár skákir eru eftir af einvíginu. Ding Liren á eftir að fá hvítu mennina tvisvar sinnum og verður að ná vinningi í annarri skákinni til að þvinga bráðabana.
Enn var boðið upp á spænska leikinn, einhverskonar „Anti-Marshall“ línu.
Ian Nepomniachti valdi hér að leika 8.a3 en hafði áður í einvíginu leikið 8.c3. Nepo hafði unnið Ding Liren í mikilvægri skák í Kandídatamótinu árið 2020 í nákvæmlega sama afbrigði. Fyrirfram hefði mátt búast við Ding vel undirbúnum í því afbrigði og því kannski ekki líklegt til árangurs, allavega í byrjuninni.
Ding breytti útaf þeirri skák eins og kannski við var að búast. 15.Rg5 var nýr leikur í stöðunni hjá Nepo og Ding svaraði með 15…c4 sem er tilraun til að hræra aðeins í taflinu og gera biskupinn á a2 slakan.
Nepo brást eiginlega við með því að þvinga taflið í fjöldauppskipti, tók engar áhættur. Eftir 19.dxc4 komu FIMMTÁN leikir í ráð sem tóku mann af andstæðingnum. Vafalítið met í heimsmeistaraeinvígi, annað kæmi á óvart!

Einnig virðist þessi skák vera sú fyrsta þar sem báðir hafa tvípeð á e-línunni í sögu heimsmeistaraeinvígja!
Þetta kemur strax á eftir líklega öðru „meti“ í heimsmeistaraeinvígi en lausleg könnun bendir til að aldrei hafi tveir kóngar verið einir eftir á borðinu, líkt og í 10. einvígisskákinni!
Þeir fóru nú ekki í kóng gegn kóng í þessari skák en í kjölfarið á fjöldauppskiptunum var steindautt hróksendatafl á borðinu og jafntefli samið eftir þó nákvæma vörn Ding.
Einkunnabókin

Ding Liren: "I think it’s too early to play something like the Sicilian. Still, there are three games ahead. In the Candidates, I won in the last game, so, anything can happen in the last three rounds." #NepoDing
📷: David Llada pic.twitter.com/jjq3Zh6KN9
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 24, 2023
Á morgun er frídagur en miðvikudag og fimmtudag eru svo tefldar 12. og 13. einvígisskákin. Ding hefur hvítt í næstu skák og vonandi fáum við lykilskák á laugardaginn í 14. skákinni þar sem Ding hefur hvítt.
- Heimasíða heimsmeistaraeinvígisins
- Beinar lýsingar (FIDE)
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Beinar lýsingar (Chess.com)
















