Haldnir eru hálfsmánaðarlegir fyrirlestrar. Eftir um klukkutíma fyrirlestur er sett upp lítið hraðskákmót en stundum er fyrirlestur allan tímann, fer eftir vilja hópsins. Æfingarnar hefjast klukkan 19:30 og þeim lýkur um klukkan 21:30. Ingvar Þór Jóhannesson hefur yfirumsjón með æfingunum og mun sjá um æfingu kvöldins. Ekki er tekið við skráningum í þessar æfingar, bara mæta á staðinn og hvert skipti kostar 1000kr.

Fyrirlestrarnir fara fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12.

Það eru 3 fyrirlestrar eftir vorið 2023

Skákmenn geta skráð sig á póstlista æfinganna þar sem sendur verður tölvupóstur hálfsmánaðarlega með áminningu um æfingar vikunnar.

Skráning á póstlista

Dagskráin:

27. apríl 

11. maí 

25. maí 

- Auglýsing -