Heimsmeistarakandídatarnir Ian Nepomniachtchi og Ding Liren skildu jafnir í 13. einvígisskákinni í dag. Nepo hafði hvítt og beitti kóngspeðinu eins og svo oft áður og enn og aftur var spænski leikurinn á boðsstólnum.

Þessi „Anti-Marshall“ staða hefur komið all oft upp í einvíginu og Nepo bæði valið 8.a3 og 8.c3 hér. Í dag varð 8.c3 aftur fyrir valinu. Eftir 8…0-0 breytti Nepo útaf fyrri skák í einvíginu þar sem hann valdi 9.a4 og lék í dag 9.h3.

Ding virtist jafna taflið nokkuð auðveldlega og var jafnvel með færi á að taka yfir frumkvæðið. Svartur náði góðu …d5 „breaki“ á miðborðinu.

Hér hefði 21…Hb8 verið flottur og hvítur þyrfti að hafa sig allan við að halda í horfið. 21…He5?! var ekki jafn góður og eins var 23…De7? slakur þar sem 23…De8 hefði verið mjög flottur. Munurinn lá í stöðunni þar sem Ding fórnaði skiptamun

Með drottninguna á e8 hér ætti svartur auðvitað …Bc5 og hefði því haldið betri stöðu. Hvítur stendur aðeins betur eftir skiptamunsfórnina en það var eins og Nepo væri eitthvað lítill í sér eftir tapið í gær.

Hann gerði enga tilraun til að reyna að vinna, sem reyndar er alls ekkert auðvelt, og leyfði þess í stað endurtekningu á leikjum. Rc1-d3-c1 á meðan hvítur lék He2-e1-e2 o.s.frv.

Einkunnabókin

Mun betri skák heldur en í gær hjá þeim félögum!

Ljóst er að Ding stendur nú betur að vígi en hann fær hvítt í síðustu kappskákinni á laugardaginn kemur. Ekki missa af því!

- Auglýsing -