Æfingahópur efnilegra skák unglinga á aldrinum 16-25 hefur farið fram á miðvikudögum í vetur. Helgi Ólafsson hefur verið með hópinn og eru iðullega fyrirlestrar af einhverju tagi og svo grjótharðar „æfingamenntur“ þar sem teflt er.
Í gær var mjög skemmtileg heimsókn frá Guðmundi Sigurjónssyni, öðrum stórmeistara Íslandssögunnar. Guðmundur fór yfir skákir sem ekki hafa birst áður í unglingalandskeppni á milli Norðurlanda og Sovétríkjanna.

Helgi Ólafsson stiklaði á stóru um feril Guðmundar í upphafi fyrirlesturs og gaman fyrir yngri kynslóðina að fá aðeins meiri innsýn í afrek Guðmundar.
Guðmundur fór yfir tvær skemmtilegar skákir sem hann tefldi á fyrsta borði í þessari keppni gegn Boris Gulko. Lærdómsríkar skákir þar sem Guðmundur hafði 1,5 vinning gegn 0,5 og sérstaklega skemmtileg skák hjá honum með hvítu í Spánverjanum sem hefur vonandi verið lærdómsrík fyrir þá eru sóttu fyrirlesturinn.
Að fyrirlestri loknum var svo taflmennska og slóst Guðmundur óvænt í hópinn og sýndi að hann hefur litlu gleymt. Helgi Ólafsson varð hlutskarpastur í 11. umferða móti en Guðmundur hlaut 7,5 vinning og lagði flesta af stigahæstu mönnum þessa æfingamóts að velli.
„Form is temporary, class is permanent“ segir einhversstaðar!
Gott framtak hjá Skákskólanum að halda utan um þennan hóp og hlúa að honum en upphaf þessa hóps var hugmynd Halldórs Grétars Einarsson á sínum tíma.
















