Silja Rún og Theodór Helgi ásamt Helga Árnasyni formanni Fjölnis. Mynd: Fjölnir.

Á hinu fjölmenna Sumarskákmóti Fjölnis var tilkynnt um hverjir hefðu orðið fyrir valinu sem afreks-og æfingameistarar Skákdeildar Fjölnis æfingaárið 2022-2023. Þetta eru þau Theodór Helgi nemandi í 7. bekk Foldaskóla og Silja Rún Jónsdóttir 6. bekk Rimaskóla.

Helgi Árnason formaður Skákdeildarinnar afhenti þeim eignarbikara að launum. verðlaun sem Rótarýklúbbur Grafarvogs gaf líkt og fyrri ár. Til hamingju Silja Rún og Theodór.

- Auglýsing -