Meistaramót Skákskóla Íslands 2023 fyrir keppendur sem eru undir 2000 elo stigum verður haldið 20.-21. maí nk.

Ákveðið hefur verið að keppni í stigahærri flokki Meistaramóts Skákskóla Íslands 2023 þ.e. u 2000 flokknum fari fram með at-skákafyrirkomulagi að þessu sinni. Tímamörk verða 25 10.  Meistaramót Skákskóla Íslands og unglingameistaramóti  Íslands 2023 sem er opið fyrir skákmenn 22 ára og yngri fer fram rétt fyrir jólin 2023 verður svo með hefðbundnu fyrirkomulagi kappskáka.

Breyting nær einnig til keppnisdaganna sem verða tveir þ.e. 20. og 21. maí nk.

Þá hafa verið gerðar örlitlar breytingar á tímasetningu u – 1500 stiga flokksins en keppnin reiknast til alþjóðlegra skákstiga. Tímamörk eru 30 30.

Fyrirkomulag mótsins eftir breytingu er því með þessum hætti:

A:

Flokkur sem er skipaður keppendum með 1500 elo stig eða minna og er sá flokkur einnig opinn þeim sem ekki hafa ennþá fengið alþjóðleg elo-stig.

B:

Flokkur keppenda sem er skipaður keppendum 1500 – 2000 elo stig. Keppendur sem ekki hafa náð 1500 elo geta óskað þess að taka þátt í stigahærri flokknum enda liggja til þess gildar ástæður sem mótsstjórn mun fara yfir.

Þá er stefnt er að því að halda sameinað Meistaramót Skákskólans og Unglingameistaramót Íslands dagana 15.–17. desember nk. Nær það mót m.a. til keppenda sem eru yfir 2000 elo stigum þ.m.t. U-25 hópnum sem Skákskólinn stendur fyrir í samvinnu við SÍ. 

Mótsstaður: Húsnæði skólans að Faxafeni 12, 108 Reykjavík. 

Flokkur u 1500 elo

*Þátttökuréttur: Allir nemendur fæddir 2003 og síðar sem tekið hafa þátt í námskeiðum og annarri dagskrá á vegum Skákskólans starfsárið 2022–2023.

*Fyrirkomulag í keppni u 1500 elo og stigalausra:

*Umferðafjöldi: 7 umferðir.

*Tímamörk: 30 30 á allar skákirnar.

*Fyrirkomulag: Svissneska kerfið

*Skákstig: Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

*Yfirseta: Gefið er kost á einni yfirsetu í 1. – 4. umferð. Tilkynna verður um yfirsetuna áður en parað er í næstu umferð. 

Dagskrá: 

  1. umferð: Laugardagurinn 20. maí kl. 11
  2. umferð: Laugardagurinn 20. maí kl. 13.30
  3. umferð: Laugardaginn 20. maí kl. 16.
  4. umferð: Laugardaginn 20. maí kl. 18.30 
  1. umferð: Sunnudaginn 21. maí kl. 11.
  2. umferð: Sunnudaginn 21 maí kl. 1330
  3. umferð: Sunnudaginn 21. maí kl. 16. 

Verðlaun í flokki keppenda u 1500 elo.

  1. verðlaun: Ferðastyrkur að verðmæti kr. 40 þús.
  2. verðlaun: Skákbók, myndband eða sambærilegt efni að verðgildi frá Chessable.
  3. verðlaun: Skákbók, myndband eða sambærilegt efni að verðgildi frá Chessable. 

Verðlaun á flokki keppenda u 1200 elo og stigalausra

  1. verðlaun: Ferðastyrkur að verðmæti kr. 30 þús.
  2. verðlaun: Skákbók, myndband eða sambærilegt efni að verðgildi frá Chessable.
  3. Verðlaun: Skákbók, myndband eða sambærilegt efni að verðgildi frá Chessable.

Flokkur 1500-2000 elo

*Tefldar verða 8 umferðir.

*Tímamörk: 25 10 á allar skákirnar

*Fyrirkomulag: Svissneska kerfið

*Skákstig: Mótið verður reiknað til alþjóðlegra at-skákstiga.

*Yfirseta: Gefinn er kostur á einni yfirsetu í einum af fyrstu fjórum umferðunum. Tilkynna verður um yfirsetuna áður en parað er í næstu umferð. 

Dagskrá 

  1. umferð: Laugardaginn 20. maí kl. 11.
  2. umferð: Laugardaginn 20. maí kl. 1230
  3. umferð: Laugardaginn 20. maí kl. 14

4 umferð: Laugardaginn 20. maí kl. 1530

  1. umferð: Sunnudaginn 21. maí kl. 11.
  2. umferð: Sunnudaginn 21. maí kl. 1230
  3. umferð: Sunnudaginn 21. maí kl. 14
  4. umferð: Sunnudaginn 21. maí 1600

 Verðlaun:

  1. verðlaun: Ferðastyrkur að verðmæti kr. 90 þús.
  2. verðlaun: Ferðastyrkur að verðmæti kr. 50 þús.
  3. verðlaun: Ferðastyrkur að verðmæti kr. 40 þús.

4.– 6. verðlaun: Skákbók, myndband eða sambærilegt efni að verðgildi frá Chessable.

Verðlaunafhending fer fram strax að móti loknu.

Mótsstjórn áskilur sér rétt til að bjóða völdum einstaklingum þátttöku í mótinu og að gera breytingar á boðaðri dagskrá ef þurfa þykir.

- Auglýsing -