Fimm Íslendingar tefla á alþjóðlegu móti sem nú er í gangi á Helsingjaeyri í Danmörku. Gauti Páll Jónsson (2054) sem teflir í þriðja meistaraflokki hefur fullt hús. Davíð Stefánsson (1671) sem teflir fjórða Kronborg-flokki hefur einnig fullt hús.
Gengi annarra Íslendinga á mótinu hefur verið brokkgengara. Björn Þorfinnsson (2364) sem teflir í GM-flokki hefur 1½ vinning eftir fjórar umferðir. Hann lagði þó sænska stórmeistarann Erik Blomquist (2521) að velli en hefur gengið verr gegn minni spámönnum.
Stefán Bergsson (2186) hefur hálfan vinning eftir tvær umferðir í Meistaraflokki 1, og sama skor hefur Páll Þórsson (1710) í Kronborg-flokki nr. 3.
Í flokki Björns eru tefldar 9 umferðar í 5 dögum en hinir tefla 7 umferðir á 4 dögum. Túrbó-mót. Teflt er í fámennum flokkum og segja má að fyrirkomulagið að því leyti líkist Haustmótinu. Draumamót áhagenda flokkaskiptingar. Mótinu lýkur á sunnudaginn.