Fimmta umferð Skákþings Íslands hefst kl. 15 í dag. Teflt er á Ásvöllum í Hafnarfirði.
Heitt á könnunni og sérfræðingar á staðnum. Hægt að horfa skákirnar á skjám og spjalla um heima, geima og skák.
Rétt er að benda á Skákvarpið hans Ingvar sem hefst á milli 16:00 og 16:30.
Staðan eftir fjórar umferðir
- 1. GM Guðmundur Kjartansson (2402) 3½ v.
- 2.-3. GM Hannes Hlífar Stefánsson (2521) og GM Vignir Vatnar Stefánsson (2470) 3 v.
- 4.-5. WGM Lenka Ptácníková og IM Hilmir Freyr Heimisson (2353) 2½ v.
- 6. GM Henrik Danielsen (2501) 2 v.
- 7.-10. FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338), GM Bragi Þorfinnsson (2431), GM Hjörvar Steinn Grétasson (2539) og IM Dagur Ragnarsson (2346) 1½ v.
- 11. GM Jóhann Hjartarson (2366) 1 v.
- 12. Jóhann Ingvason (2076) ½ v.
Í umferð dagsins mætast (vinningar í sviga):
- GM Vignir Vatnar Stefánsson (3) – GM Guðmundur Kjartnasson (3½)
- GM Hannes Stefánsson (3) – Jóhann Ingvason (½)
- IM Hilmir Freyr Heimisson (2½) – FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (1½)
- GM Bragi Þorfinnsson (1½) – WGM Lenka Ptácníková (2½)
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (1½) – GM Henrik Danielsen (2)
- GM Jóhann Hjartarson (1) – IM Dagur Ragnarsson (1½)
Keppendalistinn er sem hér segir (skákstig og íslandsmeistaratitlar í opnum flokki í sviga)
- Hjörvar Steinn Grétarsson (2539-2) – stórmeistari
- Hannes Hlífar Stefánsson (2521-13) – stórmeistari
- Henrik Danielsen (2501-1) – stórmeistari
- Vignir Vatnar Stefánsson (2470-0) – stórmeistari
- Jóhann Hjartarson (2466-6) – stórmeistari
- Bragi Þorfinnsson (2431-0) – stórmeistari
- Guðmundur Kjartansson (2402-3) – stórmeistari
- Hilmir Freyr Heimisson (2353-0) – alþjóðlegur meistari
- Dagur Ragnarsson (2346-0) – alþjóðlegur meistari
- Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338-0) – FIDE-meistari
- Lenka Ptácníková (2099-0) – stórmeistari kvenna
- Jóhann Ingvason (2076-0)
Glæsileg umgjörð verður á mótinu. Allir skákirnar í beinni (þó með 15 mínútna seinkun) og beinar lýsingar í umsjón okkar færustu lýsenda.
Útsendingar á netinu hefjast því ekki fyrr en kl. 15:15.
Styrktaraðilar mótsins eru
- Hafnarfjarðarkaupstaður
- Algalíf
- Teva
- Lengjan
- Guðmundur Arason
- MótX
Tenglar
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Skákvarpið
- Beinar útsendingar (Chess.com)
- BEinar útsendingar (Chess24)
- Beinar útsendingar (Chessbase)
- Beinar útsendingar (kingwatcher)
- Auglýsing -

















