Sjöunda umferð Skákþings Íslands hefst kl. 15 í dag. Teflt er á Ásvöllum í Hafnarfirði.

Rétt eins og í gær mætast efstu menn (Hinir fjórir frækn) ekkert innbyrðis. Í gær unnu þeir allir með svörtu. Spurning hvort að sama saga endurtaki sig í dag en þeir hafa allir hvítt?

Rétt er að benda á Skákvarpið hans Ingvar sem hefst á milli 16:00 og 16:30.

Slóð á Skákvarpið. 

Staðan eftir sex umferðir af ellefu

  • 1.-2. Guðmundur Kjartansson og Hannes Hlífar Stefánsson 5 v.
  • 3.-4. Vignir Vatnar Stefánsson og Hilmir Freyr Heimisson 4½ v.
  • 5. Jóhann Hjartarson 3 v.
  • 6.-9. Aleksandr Domalchuk-Jonasson, Lenka Ptácníková, Bragi Þorfinnsson, og Hjörvar Steinn Grétarsson 2½ v.
  • 10. Henrik Danielsen 2 v.
  • 11. Dagur Ragnarsson 1½ v.
  • 12. Jóhann Ingvason ½ v.

Í umferð dagsins mætast (vinningar í sviga):

  • GM Hannes Hlífar Stefánsson (5) – WGM Lenka Ptácníková (2½)
  • GM Guðmundur Kjartansson (5) – IM Dagur Ragnarsson (1½)
  • IM Hilmir Freyr Heimisson (4½) – GM Bragi Þorfinnsson (2½)
  • GM Vignir Vatnar Stefánsson (4½) – GM Henrik Danielsen (2)
  • GM Jóhann Hjartarson (3) – Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2½)
  • GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2½) – Jóhann Ingvason (½)

Keppendalistinn er sem hér segir (skákstig og íslandsmeistaratitlar í opnum flokki í sviga)

  1. Hjörvar Steinn Grétarsson (2539-2) – stórmeistari
  2. Hannes Hlífar Stefánsson (2521-13) – stórmeistari
  3. Henrik Danielsen (2501-1) – stórmeistari
  4. Vignir Vatnar Stefánsson (2470-0) – stórmeistari
  5. Jóhann Hjartarson (2466-6) – stórmeistari
  6. Bragi Þorfinnsson (2431-0) – stórmeistari
  7. Guðmundur Kjartansson (2402-3) – stórmeistari
  8. Hilmir Freyr Heimisson (2353-0) – alþjóðlegur meistari
  9. Dagur Ragnarsson (2346-0) – alþjóðlegur meistari
  10. Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338-0) – FIDE-meistari
  11. Lenka Ptácníková (2099-0) – stórmeistari kvenna
  12. Jóhann Ingvason (2076-0)

Glæsileg umgjörð verður á mótinu. Allir skákirnar í beinni (þó með 15 mínútna seinkun) og beinar lýsingar í umsjón okkar færustu lýsenda.

Útsendingar á netinu hefjast því ekki fyrr en kl. 15:15.

Styrktaraðilar mótsins eru

  • Hafnarfjarðarkaupstaður
  • Algalíf
  • Teva
  • Lengjan
  • Guðmundur Arason
  • MótX

Tenglar

- Auglýsing -