Matthías Björgvin og Ingvar Wu eru núverandi Íslandsmeistarar í skólaskák.

Reykjavíkurmót í skólaskák fer fram fimmtudaginn 25. og föstudaginn 26. maí í Taflfélagi Reykjavíkur að Faxafeni 12.

Teflt verður í einstaklingsflokkum 1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Keppnisrétt hafa þeir krakkar í reykvískum grunnskólum sem teflt hafa með a-sveit síns skóla í einhverri af sveitakeppnum þessa skólaárs. Auk þess hafa allir krakkar úr reykvískum skólum, og með skákstig, keppnisrétt.

1.-4. bekkur: fimmtudagur 16:00 – 18:00

5.-7. bekkur: föstudagur 15:00 – 17:00

8.-10. bekkur fimmtudagskvöld 19:30 – 21:30

ATH: Mæting og staðfesting þátttöku er í síðasta lagi 10 mínútum áður en mótið hefst.

Umferðarfjöldi og tímamörk verða endanlega ákveðin þegar skráning liggur fyrir en má gera ráð fyrir 7 umferðum í hverjum flokki með umhugsunartíma 7mín 3sek í viðbót.

Skráningarfrestur er til 22:00 þriðjudaginn 23. maí.

Efstu þrjú í hverjum flokki hljóta keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák sem fram fer í Kópavogi 10. og 11. júní.

- Auglýsing -