Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2521) gerði jafntefli í 4. umferð alþjóðlega móts í Przeworsk í Póllandi í gær.
Hannes hefur byrjað afar vel á mótinu og hefur 3½ vinning og er í 1.-2 sæti.
Í dag eru tefldar tvær umferðir.
Þátt taka 10 skákmenn, og tefla allir við alla. Þar af eru þrír stórmeistarar. Hannes er þriðji í stigaröð keppenda. Meðalstigin eru 2451 skákstig.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)
———–
Í gær hófst alþjóðlegt skákmót í Munchen í Þýskalandi. Tveir íslenskir keppendur taka þátt en það eru Guðmundur Kjartansson (2402) og, Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338).
Fyrsta umferð fór fram í gær og unnu þeir báðir tölvuert stigalægri keppendur (2029-2052)
Önnur umferð fer fram í dag og þá tefla þeir aftur við stigalægri andstæðinga (1995-2204).
162 skákmenn taka þátt í mótinu og þar af eru 12 stórmeistarar. Guðmundur er nr. 25 í stigaröð keppenda en Aleksandr er nr. 36.
———–
FIDE-meistarinn Sigurður Daði Sigfússon (2279) er meðal keppenda á EM öldunga sem fram fer í Acqui Terme á Ítalíu. Hann vann í sjöttu umferð sem fram fór í gær. Hann hefur 4 vinninga og er í 11.-14. sæti.
Alls eru tefldar níu umferðir. Í flokki Sigurðar Daða (50+) eru 80 keppendur frá 25 löndum. Þar af eru 5 stórmeistarar og 7 alþjóðlegir meistarar. Daði er tíundi í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13)