Um helgina fór fram Chess After Dark mót í Sykursalnum í Grósku. 57 galvaskir skákmenn mættu til leiks en teflt var í tveimur flokkum – yfir 1600 og undir 1600 (kónga flokkurinn).

Mótið hófst á því að Jóhann Berg Guðmundsson atvinnumaður í knattspyrnu sem spilar með Burnley & íslenska landsliðinu lék fyrsta leikinn fyrir nýkrýndan íslandsmeistara Vignir Vatnar Stefánsson.
Tefldar voru sjö umferðir með tímamörkunum 5+3 og fjórir efstu komust áfram í útsláttarkeppni í báðum flokkum.
Eftirfarandi keppendur komust áfram í úrslit:
Yfir 1600:
- Helgi Áss Grétarsson 6v af 7 mögulegum
- Bragi Þorfinnsson 5.5v af 7 mögulegum
- Björn Þorfinnsson 5v af 7 mögulegum
- Jóhann Hjartarson 5v af 7 mögulegum
Undir 1600:
- Sverrir Hákonarson 6.5v af 7 mögulegum
- Harald Björnsson 5.5v af 7 mögulegum
- Roberto Eduardo 5.5v af 7 mögulegum
- Gylfi Þorsteinn Gunnlaugsson 5v af 7 mögulegum
Fór það svo að Jóhann Hjartarson lagði Helga Áss Grétarsson í tveggja skáka einvígi og Björn Þorfinnsson sigraði bróður sinn Braga Þorfinnsson í yfir 1600 flokknum.
Sverrir Hákonarson sigraði Gylfa Þorstein Gunnlaugsson í kóngaflokknum og Harald Björnsson lagði Roberto Eduardo.
Í úrslitum mættust því Björn Þorfinnsson og Jóhann Hjartarson í Armageddon skák þar sem Björn Þorfinnsson hafði sigur og fyrsti sigur hans í CAD móti staðreynd.

Í kóngaflokknum mættust Sverrir Hákonarson og Harald Björnsson þar sem Sverrir Hákonarson hafði sigur.
Helgi Áss Grétarsson sigraði svo Braga Þorfinnsson í skák um þriðja sætið og Roberto Eduardo sigraði Gylfa Þorstein í skák um bronsið í kónga flokknum.
Chess After Dark þakkar öllum kærlega fyrir komuna – það var ótrúlega gaman að sjá svona mikið af nýjum andlitum í kónga flokknum.
Draumur CAD er að halda áfram að gera skákmönnum hátt undir höfði í bland við að fá inn ný andlit í skákina.
Nánari upplýsingar um mótið hér: https://chess-results.com/tnr774588.aspx?lan=1 & https://chess-results.com/tnr774587.aspx?lan=1
Sjáumst á Ölver 23. júní!
Bestu kveðjur,
CAD bræður

















