Helgi Áss vann í fjórðu umferð í A-flokki í Pardubice en Sigurður Ingason laut í dúk í B-flokki.

Helgi Áss Grétarsson (2475) teflir á Czech Open í Pardubice. Helgi er númer 15 í styrkleikaröð af 292 keppendum. Helgi hafði 3 vinninga af 4 fyrir umferð dagsins

Helgi mætti Englendingnum Viktor Stoyanov (2258) í 5. umferðinni. Helgi fékk kannski ekki mikið úr byrjuninni en fékk baráttustöðu sem hann er svo góður í. Viktor veikti stöðu sína of mikið með 15…e5? í miðtaflinu og Helgi tók yfirhöndina. Eftir slaka leiki í miðtaflinu fékk Helgi myljandi sókn og sá enski hefið getað gefist upp með mjög góðri samvisku. Hann ákvað hinsvegar að gefa Helga æfingu í að velja flottustu vinningsleiðina og nokkuð víst að Helgi hefur ekkert verið að drepast úr leiðindum í lokin á þessari skák!

Fínn sigur og Helgi því með 4 vinninga af 5. Efstu menn hafa 4,5 vinning þannig að Helgi er í seilingarfjarlægð.

Helgi mætir Pólverjanum Franciszek Semecki (2309) í 6. umferðinni og fær aftur hvítt!

Sigurður Ingason situr að tafli í B-flokki á Czech Open

Sigurður Ingason (1721) tefli i B-flokki á Czech Open í Pardubice. Sigurður er númer 138 í styrkleikaröð af 279 keppendum.

Í fimmtu umferð mætti hann Tékkanum Lukas Drasner (1922) og varð að játa sig sigraðan. Fyrsta tap Sigurðar sem hefur 2 vinninga af 5 mögulegum.

Chess-Results

- Auglýsing -