Kristján Örn Elíasson hefur um nokkra mánaða skeið stjórnað vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í gær mætti Kjartan Briem í þáttinn. Í kynningu um þáttinn segir meðal annars:
Kjartan Briem framkvæmdastjóri Isavia ANS, dótturfélags Isavia, kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans ,,Við skákborðið“. Kjartan á sæti í landsliðsnefnd Skáksambands Íslands og er faðir þriggja efnilegra skákungmenna, þeirra Stepans Briem, Benedikts Briem og Guðrúnar Fanneyjar Briem. Kjartan sagði frá íþróttaferli sínum en hann var Íslandsmeistari í borðtennis og keppti með tveimur kynslóðum í landsliði Íslands. Hann spilaði yfir 100 landsleiki á ferlinum. Kjartan talaði um föður sinn, Stefán Briem, sem var öflugur skákmaður og sagði frá börnunum sínum þremur sem öll eru mikið í þróttafólk bæði á sviði skáklistarinnar og knattspyrnunnar.
Þátttinn má nálgast á Spotify.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.















