Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2412) og Margeir Pétursson (2423) hófu í dag leik á flokkaskiptu móti í Póllandi, Ustron Chess Festival. Báðir eru þeir í Masters flokknum þar sem 54 keppendur taka þátt. Margeir er 10. stigahæsti maður mótsins en Aleksandr sá 13. stigahæsti.

Margeir mætti Can Haktan Unat (2239), sem er ungur tyrkneskur FIDE meistari. Margeir beitti f3 afbrigðinu gegn Nimzo-indverjanum og upp kom hvöss staða þar sem svartur náði að vinna skiptamun. Margeir hafði þó vissar bætur í öruggri peðastöðu og færum á svörtum reitum sem svartur hafði ekki.

Margeir náði að baka svörtum vandræði og á endanum gaf svartur skiptamuninn til baka og var þá peði undir. Þá var komið að Margeiri að pína andstæðinginn aðeins. Tyrkinn gaf síðasta mann sinn fyrir síðasta peð Margeirs en þá var komin fræðileg jafnteflisstaða, hrókur og riddar gegn hrók. Okkar maður lét aðeins reyna á þann tyrkneska en jafntefli var loks samið í 78. leik.

Sasha (Aleksandr) hefur heldur betur komið eins og stormsveipur inn í íslenskt skáklíf. Tók silfrið.

Aleksandr mætti Hubert Meers (2223) sem er merktur sem Pólverji en nafnið hljómar þó meira hollenskt. Aleksandr hafði svart og jafnaði taflið tiltölulega fljótlega. Svartur fékk svo betra í miðtaflinu og loks var farið í hróksendatafl þar sem svartur hafði umframpeð og náði að búa til tvo samstæð frípeð sem knúðu Meers til uppgjafar.

Sannfærandi hjá Sasha.

Í næstu umferð mætir Aleksandr Pólverjanum CM Piotr Kejna (2235) og hefur hvítt. Margeir fær svart á Pólverjann Przemyslaw Zdybal (2223)

Beint á Chess24

Stefán Steingrímur Bergsson (2135) tefldi aftur tvöfalda umferð á Bautzener Türme Open í Þýskalandi. Um er að ræða 9 umferða mót sem keyrt er á 6 dögum með þremur tveggja umferða dögum. 80 keppendur eru skráðir til leiks. Titilhafar á mótinu eru 13 talsins og Stefán er númer 19 í styrkleikaröð.

Stefán hafði 3 vinninga úr fimm fyrstu umferðunum og mætti Þjóðverjanum Felix Schreiber (1884) í sjöttu umferðinni. Jafntefli varð í fyrri skák dagsins.

Í seinni skákinni fékk Stefán hvítt á Felix Zenker (1905), enn einn Þjóðverjinn og Stefán mættur í U-2000 mót Þjóðverja að því er virðist! Stefán tefldi sleggjuskák að þessu sinni og lúðraði Þjóðverjanum af borðinu.

Stefán hefur því 4,5 vinning af 7 og losnar úr „U2000 mótinu“ á morgun en þá fær hann Þjóðverjann Richard Müller er hefur 2244 skákstig.

Chess-Results

Sigurður Ingason að tafli Mynd: Skák.is/Gerd Densing.

Sigurður Ingason situr einnig að tafli í Búdapest á hinusögufræga First Saturday móti. Sigurður teflir í Round-Robin flokki þar sem tefld er tvöföld umferð. Sigurður er stigalægstur í flokknum og teflir um 250 stig upp fyrir sig í hverri skák.

Í sjöttu umferðinni tefldi Sigurður við sama andstæðing og í 1. umferð, Tibor Ladanyi (2018) og tapaði Sigurður þeirri skák og hefur 1,5 vinning af 6.

Sigurður fær Torok Tamas Titusz (1996) í næstu umferð en Sigurður lagði hann að velli í fyrri umferðinni.

Chess-Results

- Auglýsing -