Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2412) og Margeir Pétursson (2423) tefla þessa dagana á flokkaskiptu móti í Póllandi, Ustron Chess Festival. Báðir eru þeir í Masters flokknum þar sem 54 keppendur taka þátt. Margeir er 10. stigahæsti maður mótsins en Aleksandr sá 13. stigahæsti.

Aleksandr hafði 2 vinninga af 3 fyrir tvöföldu umferð dagsins. Hann mætti Pólverjann Tymon Ochedzan (2208) með hvítu í fyrri skákinni. Aleksandr vann átakalítinn sigur. Hann fékk fínt úr byrjuninni og svo biskupaparið og auðveldan peðaveikleika að tefla á móti. Þægileg skák fyrir okkar mann.
Í seinni skákinni fékk Aleksandr svart gegn alþjóðlegum meistara frá Serbíu, Nikola Radovanovic. Aleksandr fórnaði peði í byrjuninni en náði ekki að fá nógu mikið úr flækjum í miðtaflinu og endaði skiptamun undir með tapað tafl.
3 vinningar af 5 nokkurn veginn á pari og á morgun mæti Sasha pólskum andstæðingi Patryk Chylewski sem er IM með 2286 elóstig og fær hvítt.

Margeir tók yfirsetu í morgunumferðinni en mætti svo Írana, Seyed Moosavifar (2187) í 5. umferðinni. Íraninn fór beint á heimavöll Margeirs í drekanum og fékk að kenna á því. Margeir skólaði hann eftir öllum kúnstarinnar reglum og það illa að Íraninn var greinilega búinn að missa móðinn alveg í lokin því hann gefst upp loksins þegar hann á smá séns á mótspili með 35.f5.
Margeir þá með 2,5 vinning og fær pólskan CM Flawian Krawczyk (2243) á morgun.
Í fjórðu umferðinni fær Aleksandr. Margeir er skráður með hjásetu í morgunumferðina.

Héðinn Steingrímsson tekur þátt 10th Annual Washington International í Bandaríkjunum. Um er að ræða hraðmót sem keyrt er á 5 dögum með 4 tvöföldum dögum. 51 keppandi er skráður til leiks og er Héðinn sjöundi í stigaröðinni.
Héðinn hafði 2,5 af 3 og skák hans í fjórðu umferð í gangi vel frameftir nótt að íslenskum tíma í gær. Þar hafði Héðinn hvítt á indverska stórmeistaranum Rahul Srivatshav (2481) og hafði betra tafl lengst af.
Lykilstaðan var hér.
Hvítur vinnur eftir 34.Kh3!! en Héðinn lék 34.He7+?? og varð að sætta sig við jafntefli.
Héðinn situr nú að tafli í 5. umferðinni og er með svart gegn GM Alexander Fishbein og virðist vera að tefla hróksendatafl til vinnings án taphættu.

Sigurður Ingason situr einnig að tafli í Búdapest á hinusögufræga First Saturday móti. Sigurður teflir í Round-Robin flokki þar sem tefld er tvöföld umferð. Sigurður er stigalægstur í flokknum og teflir um 250 stig upp fyrir sig í hverri skák.
Í níundu umferðinni tapaði Sigurður gegn IM Sandor Farago (2121).
















