Íslandsmót kvenna 2023 fer fram í Reykjavík, 16.-24. september nk.

Teflt verður í tveim flokkum. Annars vegar í landsliðsflokki kvenna. Þar eiga keppnisrétt allar skákkonur með 1600 skákstig eða meira. Sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið Íslandsmeistari kvenna árið 2023. Hins vegar í áskorendaflokki. Hann er opin fyrir allar skákkonur sem ekki ná 1600 skákstigum.

Skráningarfrestur er til 10. september kl. 23:59.

Engin þátttökugjöld.

LANDSLIÐSFLOKKUR KVENNA

Opinn fyrir allar skákkonur með 1600 skákstig eða meira. Það má bæta við keppenda standi á stöku.

Tefldar verða 7-9 umferðir. Nánara fyrirkomulag ákveðið þegar endanlegur keppendafjöldi liggur fyrir.

Umferðir hefjast um kl. 17 á virkum dögum en fyrr um helgina. Mögulega verður einn tvöfaldur dagur

Tímamörk verða 90+30 auk 15 mínútna eftir 40 leiki

Verðlaun

1.      150.000 kr.
2.        90.000 kr.
3.        60.000 kr.

Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri ein jöfn í verðlaunsætum. Verði tvær eða fleiri efstar og jafnir verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.

ÁSKORENDAFLOKKUR KVENNA

Allar skákkonur með minna en 1600 skákstig hafa keppnisrétt.

Verður teflt um helgina 22.-24. september.

Teflt verður með áþekku fyrirkomulagi og í Bikarsyrpu TR.

Tímamörk verða 30+30

Verðlaun

1. Úttekt í Skákbúðinni upp á kr. 20.000
2. Úttekt í Skákbúðinni upp á kr. 15.000
3. Úttekt í Skákbúðinni upp á kr. 10.000

 

- Auglýsing -