Íslenska sveitin á HM öldungasveita vann í dag þéttan sigur á stórmeistarasveit heimamanna í Norður-Makedóníu. Sigurinn var einstaklega sætur því að á kafla leit viðureignin alls ekkert vel út. Á endanum fann íslenska liðið einhverja seiglu og sneri viðureigninni sér í vil!
Rolandi Kutirov hvíldi hjá heimamönnum.

Helgi Ólafsson hvíldi aftur hjá íslensku sveitinni, einhver vonandi minniháttar slappleiki/þreyta að hrjá Helga.
Margeir hefur verið mjög drjúgur fyrir íslensku sveitina á þessu móti og á köflum dregið vagninn. Hann hafði 4,5 af 5 fyrir þessa skák. En svo bregðast krosstré sem önnur. Margeir missteig sig í byrjuninni með framrás d-peðsins með svörtu mönnunum og mögulega ruglað saman afbrigðum en hann er ekki vanur að tefla Najdorf á svart.
Nedev náði að umkringa e-peð svarts í kjölfarið og vann það eftir nokkrar tilfærslur. Margeirs beið erfitt endatafl þar sem hann er bara að tefla upp á að bjarga jafntefli í besta falli. Margeir náði að berjast lengi í stöðunni en líklegast var hvítur alltaf að fara að vinna.
Hlutirnir gerðust hratt og skák Margeirs, Þrastar og Jón L kláruðust allar á svipuðum tíma.

Þröstur hafði svart gegn stórmeistaranum Zvonko Stanojoski. Þröstur var í núll vandræðum, jafnaði taflið auðveldlega og hafði örlítið betra tafl en aldrei nóg til að reyna neitt. Staðan var svo algjörlega orðin steingeld þegar þráleikið var.
Jón L. kom sterkur inn í þessa umferð! Margeir lenti snemma í vandræðum og einhversstaðar var einhver að stíga upp til að við ættum möguleika á sigri. Jón gerði það!
Teflt var tískuafbrigði í Caro-kann þar sem varnarmúr svarts er frekar þéttur á kóngsvæng.
Jón er náttúrulega sóknarskákmaður og blés til sóknar 16.h4 og skilur riddarann eftir í uppnámi. Svartur hafnaði boðinu og tölvurnar töldu svörtu stöðuna betri. Á þessum tímapunkti leit viðureignin endilega ekkert vel út. Margeir að tapa, Jóhann með jafnt tafl eins og Þröstur og þessi skák gat endað hvernig sem var.
Í tímahraki snerist taflið okkur í vil. Jón hélt sókninni gangandi áfram og náði að opna kóngsvænginn.
Hér er staðan orðin erfið en síðast leikur 31…Rd5-e3 tapar. 32.Bxe3 Dxe3 og einfaldlega 33.Dxe3 og svartur getur ekki tekið til baka útaf máti í borði!
Gríðarlega mikilvægur sigur hjá Jóni! Sterk liðsheild greinilega í gangi sem hefur myndast yfir áratugi. Margeir hélt nógu lengi út til að vera ekki fyrstur að láta „marka sig“ og að þremur skákum loknum var staðan nú 1,5-1,5.

Úrslitin réðust því í skák Jóhanns. Jóhann hafði hvítt á Kiril Georgiev, sterkur og þrautreyndur skákmaður. Georgiev hefur svolítið þurft að flakka á milli skáksambanda þar sem skáksamband Búlgaríu, upprunalandi hans, virðist alltaf vera á fullu í einhverskonar spillingu eða bulli.

Skák þeirra reyndist skemmtileg og spennandi. Tefldur var Najdorf og Jóhann með hvítt.
Í miðtaflinu var þungur pósi í gangi. Svartur með sterka riddara og oft er talað um að með slíkan riddara standi svartur vel. Hvítur er þó með sín tromp líka.
Við tímamörkin var skákin enn í jafnvægi samkvæmt tölvum.
Georgiev kominn með riddarana á e5 og g5 núna en hvítur að binda vonir sínar við peðameirihlutann á drottningarvængnum.
Baráttan hélt áfram með þungum tilfærlsum en rétt eftir 60. leik þá náði Jóhann að nýta b-peðið til að vinna riddara af Georgiev. Upp kom endatafl þar sem Jóhann hafði hrók+riddara+peð gegn hrók+2 peð, allt á kóngsvæng.
Georgiev lék af sér í 90. leik og Jóhann átti skemmtilega taktík. Jóhann missti hér af 91.Hh8+!! og endataflið vinnst.
Magnus Carlsen missti af flóknari útgáfu af þessari taktík um daginn gegn Nepo
Svartur átti leik, Carlsen lék 40…Rf6? en 40…Dxd1 41.Dxd1 Hh1+ hefði unnið þar sem Rxf2xd1 vinnur lið.
Flóknari útgáfan af þessu þema á eiginlega að kenna við Petrosian sem náði þessari taktík tvisvar gegn mjög sterkum skákmönnum.
Baráttan hélt áfram og það var ekki fyrr en í 107. leik (!!) sem að Jóhann hafði Georgiev undir.
107.Rf5 og hvítur nær loks að brjótast í gegn! Glæsilegur sigur í maraþon/baráttuskák!
Einhver stríðsgæfa með okkar mönnum hér sem ef til vill skorti gegn Bandaríkjamönnum.

Mögulega fengum við frekari stríðsgæfu þegar lið Ítala vann sannarlega óvæntan sigur á liði Bandaríkjamanna. 3-1 eru ótrúlegar tölur. David Albert vissulega sterkur og Godena gríðarlega traustur en á neðri borðunum eiga Bandaríkjamenn að vera betri.

Þessi óvæntu úrslit þýða að Ítalir eru orðnir efstir með 12 stig en Ísland og Bandaríkin hafa 11 stig.

Í næstu umferð er RISA-viðueign fyrir íslenska liðið. Við fáum lið Ítala og hér er nánast úrslitaviðureign á ferðinni. Ef við vinnum þessa viðureign er gullið og örlögin alfarið í höndum „strákanna okkar“!

Ísland hefur aftur hvítt á fyrsta borði.
Taflmennskan hefst klukkan 13:00 alla daga sem teflt er. Beinar útsendingar eru á lichess, Chess.com og Chess24 og eru skákskýringar Alex Colovic á chess24 hlekknum.
Íslenska liðið er númer fimm í styrkleikaröðinni og liðið skipa fjórmenningaklíkan auk Þrastar Þórhallssonar, allt stórmeistarar.
- Helgi Ólafsson (2491)
- Jóhann Hjartarson (2432)
- Margeir Pétursson (2396)
- Jón L. Árnason (2419)
- Þröstur Þórhallsson (2382)
Bandaríkin og England hafa feykisterk lið og bandaríska liðið er mjög sigurstranglegt. Alls eru 22 sveitir skráðar til leiks.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar Útsendingar (lichess.org)
- Beinar Útsendingar (chess.com)
- Beinar Útsendingar (chess24)
















