Ísland var í nokkuð góðu færi að gera atlögu að heimsmeistaratitli á HM öldungasveita í Norður-Makedóníu. Til þess hefði liðið þurfti sigur á Ítölum og lengi vel leit út fyrir það. Viðureignin snerist hinsvegar í höndunum á okkar mönnum og endaði með jafntefli. Gullið er þar með nánast pottþétt gengið úr greipum okkar manna.
Hjá Ítölum hvíldi Giulio Borgo

Helgi Ólafsson hvíldi, að glíma við minniháttar veikindi.
Jón L. var fyrstu til að klára sína skák. Jón hafði hvítt en varð lítt ágengt í spænska leiknum. Tölvurnar mátu svörtu stöðuna betri þegar samið var en jafntelfi líklegustu úrslitin þar sem erfitt var að reyna eitthvað án þess að sprengja sig.

Þröstur bauð upp á glanspartý á fjórða borði. Þröstur fékk snemma þægilegt tafl með rjómabiskup á e5 reitnum sem ekki var hægt að stugga við og hvítur með stakt peð.
Í erfiðri stöðu gaf Bellia færi á fórn
Þröstur sá færið og lék 26…Hxd3!! 27.cxd3 Bxb2! og hvíti kóngurinn fer á vergang eða hvítur tapar liði. Þröstur endaði með þrjá létta menn fyrir tvo hróka en staða Þrastar var alltof virk til að hvítur kæmi upp mótspili.
Flottur sigur hjá Þresti. Hér var farið að stefna í sigur íslenska liðsins, Margeir virtist eiga að ná jafntefli og Jóhann með mun betra tafl. 3-1 jafnvel líklegt.
Margeir fékk svart á hinn mjög trausta Michele Godena. Sá verður seint ráðinn sem skemmtikraftur þegar kemur að skákstíl og Margeir fékk nokkuð auðvelda tafljöfnun gegn 2.c3 sikileyjarvörninni.
Godena reyndi eitthvað að juðast áfram og náði að snúa á Margeir með því að búa til frelsingja á drottningarvæng. Svartur hlýtur engu að síður að ná jafntefli með því að skipta upp á peðum á kóngsvæng en Godena náði einhvern veginn að snúa á Margeir.
Aftur kom það því í hlut Jóhanns að vinna viðureignina, það tókst í gær en gekk ekki upp í dag.

Jóhann hafði mun betra tafl framan af skákinni. David Alberto fór í vafasama aðgerð þar sem hann gaf tvo riddara fyrir hrók og peð en hvítur fékk mun þægilegri og betri stöðu. Jóhann fann hinsvegar ekki bestu leiðina til að fá samhljóm meðal hvítu mannanna og Alberto náði að sprikla sig í endatafl sem var meira að segja orðið betra á hann á einum tímapunkti. Jóhann reddaði svo að lokum jafnteflinu.
Svekkjandi úrslit, sérstaklega þar sem stöðurnar á borðinu voru efnilegar lengst af. 3-1 sigur hefði fært okkur efsta sætið og við hefðum hangið hálfum borðavinningi á undan Bandaríkjamönnum.

Staðan er þá svona:

Bandaríkjamenn unnu 4-0 sigur og hafa pálmann í höndunum. Bandaríkjamenn og Ítalir fá bæði veikari lið á morgun þar sem öll sterkustu liðin hafa teflt innbyrðis. Bæði lið eiga að geta gengið að því vísu að vinna, bara spurning hversu stórt. Sigurvegarinn verður því væntalega sá sem hreinsar betur. Bandaríkjamenn fá pólska sveit með tvo 1900 stiga menn og verða að teljast líklegri.
Íslenska liðið mun berjast við Englendinga um bronsið. Ísland hefur heilum vinningi betur á borðavinningum. Englendingar þurfa að treysta á hjálp frá b-liði sínu sem Ísland mætir á morgun. Enska liðið fær kínversku kvennasveitina.

Enska liðið er skipað FIDE meisturum og enginn varamaður. Stebbings á fjórða borði þekkja fjölmargir íslenskir skákmenn sem tefldu með Jutes of Kent í bresku deildakeppninni á sínum tíma. Öðlingsdrengur og sterkur skákmaður sem hefur ekki enn tapað skák á mótinu.
Ísland hefur svart á fyrsta borði.
Taflmennskan hefst klukkan 13:00. Beinar útsendingar eru á lichess, Chess.com og Chess24 og eru skákskýringar Alex Colovic á chess24 hlekknum.
Íslenska liðið er númer fimm í styrkleikaröðinni og liðið skipa fjórmenningaklíkan auk Þrastar Þórhallssonar, allt stórmeistarar.
- Helgi Ólafsson (2491)
- Jóhann Hjartarson (2432)
- Margeir Pétursson (2396)
- Jón L. Árnason (2419)
- Þröstur Þórhallsson (2382)
Bandaríkin og England hafa feykisterk lið og bandaríska liðið er mjög sigurstranglegt. Alls eru 22 sveitir skráðar til leiks.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar Útsendingar (lichess.org)
- Beinar Útsendingar (chess.com)
- Beinar Útsendingar (chess24)
















