Vignir Vatnar Stefánsson (2484) og Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) gerðu báðir jafntefli í sjöundu umferðinni á Heimsmeistaramóti 20 ára og yngri í Mexíkó.
Vignir hafði hvítt gegn Norðmanninum efnilega Elham Amar (2541). Norðmaðurinn var stigahæstur á EM ungmenna á dögunum en hafði ekki sigur þar þrátt fyrir að vera í toppbaráttunni.
Vignir fékk ágætis stöðu úr byrjuninni en náði ekki að fylgja því eftir og miðtaflið varð að algjörlega jöfnu tafli í lokaðri stöðu. Vignir fór líklega í röng uppskipti á hvítreitabiskupum og staða Norðmannsins fór að verða betra með pressu á e-línunni og veikur e4 reitur hjá hvítum.
Vörnin hjá Vigni varð erfiðari og erfiðari og á einhverjum tímapunkti stóð Normaðurinn líklega til vinnings. Vignir varðist þó af krafti, gaf peð og fann virki (e.fortress)
Hér leikur hvítur 54.Hc6 og fær nægjanlegt mótspil. Svartur á enga reiti til að komast í gegn með kónginn ef hvítur heldur hróknum á c-línunni. Varnir hvíts héldu, sem betur fer!
Vignir heldur sér því í seilingarfjarlægð við toppinn. Hann fær svart á indverska alþjóðlega meistarannn Harshavardhan (2397) í áttundu umferð.
Aleksandr fékk hvítt á aljþóðlega meistarann Cameron McGowan (2161) frá Ástralíu. Upp kom kóngsindverji og var Gligoric afbrigðið teflt. Svartur virtist hafa sitt vel á hreinu og Aleksandr fékk í raun lítil tækifæri til að tefla til vinnings. Endataflið sem kom upp var frekar þurrt og lítið hægt að reyna.
Aleksandr mætir heimamanninum Santiago Rodriguez Zacharias (2100) í áttundu umferð.
Vignir hefur 5 vinninga af 7 en Aleksandr 4 vinninga. Efstu menn hafa 6 vinninga, þar á meðal er Marc’andria Maurizzi (2555) 16 ára efni frá Frakklandi. Hans Niemann hefur 5 vinninga eins og Vignir.
Um mótið:
Ísland á tvo fulltrúa á Heimsmeistaramóti 20 ára og yngri í Mexíkó. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2484) er númer 19 í styrkleikaröðinni og Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) er númer 36 í styrkleikaröð. Stigahæstur keppenda er hinn umdeildi Hans Moke Niemann (2667) sem hefur verið mikið milli tannanna á fólki undanfarið. Skráðir keppendur eru 149.
Tefldar verða 11 umferðir og er dagskráin eftirfarandi (tímar íslenskir)
- umferð 21. september LOKIÐ
- umferð 22. september LOKIÐ
- umferð 22. september LOKIÐ
- umferð 23. september LOKIÐ
- umferð 24. september LOKIÐ
- umferð 26. september LOKIÐ
- umferð 27. september LOKIÐ
- umferð 28. september klukkan 22:00
- umferð 29. september klukkan 22:00
- umferð 30. september klukkan 22:00
- umferð 1. október klukkan 16:00
Frídagur er í dag mánudaginn 25. september
- Beinar útsendingar (lichess)
- Beinar útsendingar (chess.com)
- Beinar útsendingar (chess24)
- Chess-Results
- Heimasíða mótsins


















