Eftir æsispennandi lokaumferð náði íslenska liðið að enda í 3. sæti á HM öldungasveita í Norðu-Makedóníu. Viðureignin við Ítalíu í gær var mjög svekkjandi og urðu liðsmenn að gíra sig úr því að eygja virkilega góða möguleika á gullverðlaunum niður í það að berjast um bronsið.

Leiðin að bronsinu lá í gegnum sigur í viðureign dagsins gegn Englandi 2 en sá sigur mátti ekki vera með minna en eins vinnings mun á sigri Englendinga á kínversku kvennasveitinni. Íslenska sveitin hafði sumsé 21.5 borðavinning gegn 20,5 borðavinningum Englendinga.

Mótherjarnir, England 2 eins og áður sagði. Engir varamenn voru í þeirri sveit og því lá nokkuð ljóst fyrir hver mætti hverjum.

Margeir hvíldi að þessu sinni, Helgi ferskur inn og búinn að jafna sig eftir veikindi.

Stephen DishmanHelgi Ólafsson

Helgi fékk þó lítinn aðlögunartíma ef hann var orðinn ryðgaður eftir nokkra daga hvíld. Andstæðingur hans Stephen Dishman virtist hafa allt á hreinu í byrjuninni og Helgi lenti í mikilli klemmu.

Diskamaðurinn slengdi hér 10.Rd5! á borðið og með 1:23 ennþá á klukkunni. Í kjölfarið fær svartur algjöra beyglu-stöðu þar sem lítið er hægt að gera. Tölvumatið segir hvítan í raun hafa ígildi þess að vera manni yfir þrátt fyrir að hafa fórnað manni í stöðunni.

Við tók mjög erfið vörn. Helgi fór í að reyna að bjarga því sem bjargað varð. Hvítur missti af einhverjum sleggjum en eftir 28.Had1?? var Helgi kominn yfir það versta. Jafnteflinu var bjargað en meira var ekki hægt að ná úr skákinni.

Þröstur ÞórhallssonAnthony Stebbings

Þröstur stóð sig vel á fjórða borði og hann á það til að enda vel í liðakeppnum. Það gerði hann og hér og vann tvær síðustu skákir sínar. Andstæðingur hans í dag Tony Stebbings var taplaus fyrir þessa skák.

Þröstur hóf hættulegar sóknaraðgerðir hér

21.Rf6+!? gefur hvítum hættuleg færi en svartur getur varist með bestu taflmennsku. 21…Kh8 22.He3 Hd8?? var hinsvegar ekki rétt leiðin og Þröstur braust í gegn að kóngnum með 23.De4 og stuttu síðar var svarti kóngurinn í mátneti.

Vel gert hjá Þresti en hann endar ásamt Jóhanni taplaus á mótinu.

JóhannAndrew P. Lewis

Jóhann að tafli í Struga Mynd: Livshitz / Heimasíða mótsins

Jóhann hafði mun betra tafl framan af skákinni en andstæðingur hans beitti Benkö-bragði. Jóhann hélt umframpeðinu og virtist hafa öll völd.

Hér lék Jóhann 23.Hf2?! sem er full varasamur. Beinast lá við að taka peðið 23. Dxe7 en Jóhann sá einhverja drauga að þessu sinni. Um leið og umframpeðið er fallið í valinn er svartur með síst verra og jafntefli varð fljótlega niðurstaðan.

Hér voru Englendingar búnir að hreinsa gegn kínversku sveitinni og ljóst að Jón L. varð að vinna sína skák til að við næðum sama borðavinningafjölda og enska liðið.

Gary ClarkJón L. Árnason

Jón tefldi traust í byrjuninni með svörtu og beið átekta. Upp kom endatafl þar sem Jón hafði betri sénsa með biskup gegn riddara og peð á báðum vængjum.

Merkilegt nokk eru tölvuforritin mjög bjartsýn á svörtu stöðuna og telja hana mjög vænlega. Jón hélt áfram að pressa en á endanum náði hvítur að búa til virki (e.fortress) og Jón sá enga leið í gegn.

Þar með leit út fyrir að bronsið væri einnig fokið út í hafsauga þar sem Englendingar komust upp fyrir okkur.

Aftur gekk stríðsgæfan okkur í lið þar sem Ítalir náðu ekki að vinna gegn Svartfellingum. Það þýðir að við náðum Ítölum að vinningum og enduðu hálfum borðavinningi fyrir ofan þá en hálfum fyrir neðan Englendinga í öðru sæti.

Lokastaðan því svona:

Litlu mátti muna á toppnum og ljóst að sveitirnar í 2-4. sæti naga sig í handarbökin yfir augnablikum fyrr á mótinu þar sem hlutirnir hefðu getað farið betur. Vissulega hefðum við þegið heppni á ákveðnum stöðum en fengum að sjálfsögðu okkar skammt af heppni á móti.

Heilt yfir var árangur okkar manna nokkuð góður. Helgi var sá eini sem tapaði stigum en hann lenti í veikindum um mitt mót. Jóhann og Þröstur voru mjög traustir og voru taplausir.  Jón L. náði í flestar sigurskákir ásamt Margeir en sá síðarnefndi byrjaði mjög vel með 4 af 4 og dró lengi vel vagninn fyrir liðið.

Bandaríska liðið vann sigur, margir hefðu tippað á þá fyrirfram en mótið varð þó mjög jafnt og spennandi þó bandaríska liðið sé að mörgu leiti sanngjarn sigurvegari að þessu sinni!

- Auglýsing -