Gríðarlega vel heppnað, skemmtilegt og spennandi Norðurlandamót skólasveita lauk í dag á Laugarvatni. Sex sveitir í eldri og yngri flokki kepptu innbyrðis yfir helgina allir við alla. Úrslit urðu ekki ljós fyrr en eftir lokaumferðina þar sem efsta sveit og næstefsta sveitin tefldu saman í bæði eldri og yngri flokki.
Eldri flokkur
Baráttan í eldri flokki stóð á milli Vuoniityn peruskoulu frá Finnlandi og Giersings Realskole frá Danmörku. Liðin mættust í lokaumferðinni en þá munaði 1,5 vinningi á þeim. Finnarnir þurftu því að vinna 3-1 til að hrifsa titilinn af Dönunum.
Titilinn kom langleiðina í hús þegar Danir kláruðu snemma skák á 2. borði.
Finninn lék 11…Bg4?? og hvítur refsaði með 12.exf6 Bxd1 13.fxg7 Hg8 14.He1+ Kd7 15.He7+ Kd8 16.Rxc6#
Skömmu síðar fylgdi jafntefli og Danirnir orðnir sigurvegarar.

Mjótt var á mununum í baráttunni um hin sætin og síðasta skákin til að klára hjá Landakotsskóla hefði fleytt þeim á verðlaunapall. Gat ekki munað minna, Landakotsskóli missti af bronsinu á þriðja tiebreaki!


Íslensku sveitirnir voru ekki upp á sitt besta í eldri flokki en Iðunn Helgadóttir fékk þó borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 3ja borði..

Yngri flokkur
Norðurlandameistaratitill kom í hús og þar var að verki vösk sveit Lindaskóla. Strákarnir tóku „enga fanga“ á síðasta keppnisdeginum og hreinsuðu báðar viðureignir.

Sigurinn varð því á endanum nokkuð öruggur og munaði 4,5 vinningum á Lindaskóla og 2. sætinu. Verstu úrslit voru 3-1 sigur!

Það kom því kannski ekki á óvart að 3 af fjórum borðaverðlaunum voru hjá Lindaskóla. Það var aðeins Sigurður Páll sem fékk ekki borðaverðlaun en hann hefði átt þau fyllilega skilin, var með mun betra tafl sælu peði yfir gegn Finnanum sem eiginlega stal þessum verðlaunum af honum!
Sigurður átti þessa skemmtilegu fléttu á mótinu.
Svartur fær hér færi í byrjuninni og Sigurður missir ekki af því. 12…f5! 13.Bxf5 Bxf3 14.gxf3 Dh4 15.f4 He2 og staða hvíts hrynur, svartur vann mann.
Sigurður fékk 4 af 5, Engilbert 4,5 af 5 og þeir Birkir Hallmundarson og Örvar Hólm Brynjarsson fengu báðir 5 af 5.


Almenn ánægja var með mótahald, mikil vinna hvíldi á fáum herðum en Omar Salama sá um mótsstjórn og leysti það með prýði eins og við var að búast með aðstoð Roberts Lagerman í skákstjórn og Ingvars Þórs Jóhannessonar í tæknimálum. Það hjálpaði að sjálfsögðu gríðarlega hversu vel var búið að undirbúa og skipuleggja. Öll dagskrá stóðst fullkomlega og engin vandræði með mat eða gistingu. Veg og vanda að öllum undirbúningi átti forsetinn Gunnar Björnsson, sem lét sig einnig hafa það rétt fyrir brottför til Albaníu að hjálpa til við uppsetningu og teppaleggja!
Heimamenn hjálpuðu við uppsetningu og tiltekt og var þar notið góðs af sjálfboðaliðum frá Venesúela. Erlendir fararstjórar, foreldrar og keppendur voru þakklátir í mótslok og þökkuðu vel fyrir sig. Laugarvatn hefur mögulega stimplað sig inn sem athyglisverður staður fyrir mótahald!
- Facebook síða mótsins
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results A (u17) | Chess-Results B (u13)
- Beinar útsendingar á lichess A
- Beinar útsendingar á lichess B















