Heimsmeistaramóti U20 í Mexíkó lauk í dag. Þeir Vignir Vatnar Stefánsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson áttu báðir hið fínasta mót og geta gengið stoltir frá borði. Frakkinn ungi Marc’andria Maurizzi varð Heimsmeistari en hann er aðeins 16 ára gamall.
Vignir Vatnar Stefánsson (2484) fékk hvítt á slóvenska stórmeistarann Jan Subelj (2492). Það er alvöru styrkleikamerki og örugglega upplifun að vera að tefla á fjórða borði, alveg við toppinn í lokaumferð á heimsmeistaramóti!
Upp kom Catalan byrjun eina ferðina enn. Vignir er þó ansi vel að sér í Catalan og byrjunin heppnaðist mjög vel og Vignir fékk stórhættuleg færi í miðtaflinu. Krítíski punkturinn var í 20. leik.
Hvítur stendur vel og tölvumatið er nokkuð hátt. Vigni varð á í messunni hér og lék 20.Rc3? sem missir matið niður í 0.0 og Jan sá því miður rétt framhaldið 20…Re3 og taflið einfaldaðist of mikið og jafnteflið eiginlega óumflýjanlegt eftir hópkaup.
Í stöðunni hefði Vignir getað leikið 20.Rg5! hér verður svartur að bregðast við með 20…g6 en þá kemur bomban 21.Rxf7!! Aðrir leikir koma einnig til greina en Rxf7 lítur mjög vel út. Ef svartur tekur á f7 kemur f5 og svarti kóngurinn algjörlega berskjaldaður. Hefði Vignir fundið þetta og unnið skákina hefði lokasætið verið 7. sætið!
Vignir má þó mjög vel við una og endar eins og áður sagði í 13. sæti.
Fyrir árangurinn hækkar Vignir um 5 elóstig og fer taplaus í gegnum mótið.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) fékk svart á Kólumbíumanninn Juan Esteban Cabiativa (2080). Teflt var drottningarbragð en Aleksandr fékk í raun aldrei nein færi. Kólumbíumaðurinn tefldi mjög vel, hafði aðeins betra en aldrei nóg til að ógna Aleksandr. Jafntefli varð niðurstaðan í tvöföldu hróksendatafli.
Mótið hjá Aleksandr einnig fínt. Tapaði aðeins einni skák með svörtu gegn stórmeistara. Stigatapið voru 6 stig sem helgast að mestu af lokaumferðinni en þar mætti hann manni sem hlýtur að vera „underrated“ miðað við stig og taflmennsku. Erfitt er að eiga við slíkt. Gleymum líka ekki hversu góð reynsla mótið er. Sasha á enn keppnisrétt á tveimur HM U20 í viðbót!

Lokastaðan á toppnum:

Marc'Andria Maurizzi ???????? is the FIDE World Junior Champion 2023, in the open category. He finished ahead of Arseniy Nesterov and Luka Budisavljevic -in this order- thanks to his better tie-break. The new Champion is one of the youngest ever to achieve the U20 title, at just 16… pic.twitter.com/zq3pRTLWc5
— International Chess Federation (@FIDE_chess) October 1, 2023
Heimsmeistarinn er 16 ára, sem er vel af sér vikið. Við þurfum þó ekki að leita langt til að finna viðlíka dæmi, Helgi Áss Grétarsson var 17 ára þegar hann tók þennan titil árið 1994. Maurizzi var 4. stigahæsti skákmaður mótsins og gríðarlegt efni. Hann tefldi með landsliði Frakka á EM landsliða í Batumi 2019 þá aðeins 12 ára og lagði meðal annars Guðmund Kjartansson að velli. Það verður gaman að fylgjast með þessum strák á næstu árum.
- Beinar útsendingar (lichess)
- Beinar útsendingar (chess.com)
- Beinar útsendingar (chess24)
- Chess-Results
- Heimasíða mótsins

















