Víkingklúbburinn var eina íslenska liðið sem náði sér í sigur í viðureign dagsins. Víkingar lögðu finnska sveit á meðan Akureyri laut í dúk gegn sterkri litháískri sveit og TG tapaði aftur fyrir sænskri sveit í kvennaflokki.

Jóhann Hjartarson styrkti Víkingaklúbbinn en hann tefldi sína fyrstu skák í dag á mótinu, ferkur af EM öldungasveita þar sem Íslands náði bronsi. Jóhann ýtir öllum niður og Víkingar gátu beytt aðalliðinu í fyrsta skipti. Tapani og Páll gerðu jafntefi í sínum skákum en aðrir unnu. Sterkur 5-1 sigur!

Akureyringar fengu einnig liðsstyrk þar sem Stefán Bergsson var mættur til leiks eftir smá vegabréfsvandræði. Andri gat ekki teflt vegna veikinda þannig að Akureyringar eiga enn eftir að stilla upp aðalliði sínu. Halldór B. Halldórsson hvíldi einnig. Skemmst er frá því að segja að aðeins Arnar Þorsteinsson náði jafntefli en aðrar skákir töpuðust, full stórt tap þó Litháarnir séu sterkir.

Magnus Carlsen leitaði í smiðju Rúnars Sigurpálssonar og hóf taflið á að leika drottningarhrókspeði sínu einn leik áfram. Mögulegt er þó að hann hafi viljað apa leikinn eftir skák Karpov og Miles en Carlsen lék eftir 1.e4 leiknum 1…a6 í dag. Úr varð hálfgerð frönsk vörn og svo sýndi Carlsen mátt biskupaparsins í endatafli!

Kvennaflokkur

TG mætti öðru sænsku liði, Pelaro Alingsas að þessu sinni. Þar eru tvær Agrest systur mæðgur og nokkuð sterkt lið. Það veikt TG óneitanlega að Guðlaug gat ekki teflt vegna matareitrunar. Eitthvað svipað að há Andra og víst hátt í 30 manns sem liggja úr ýmsum liðum!

Íslensku liðin á EM Taflfélaga í ár eru þrjú en í fyrra voru heil fjögur lið í Austurríki í mjög skemmtilegu og eftirminnilegu móti! Mótið í ár fer fram í Durres í Albaníu. Íslensku liðin eru Víkingaklúbburinn og Skákfélag Akureyar sem tefla í opnum flokki og Taflfélag Garðabæjar sem teflir í kvennaflokki. Fyrir utan íslensku liðin má benda á að þeir Margeir Pétursson og Óskar Bjarnason tefla með klúbb frá Lúxemborg.

- Auglýsing -