Hraðskákmót Garðabæjar fór fram í gær og var vægast sagt mikið um óvænt úrslit á mótinu! Nýkrýndur Íslandsmeistari í hraðskák, Vignir Vatar Stefánsson, mætti e.t.v. aðeins of kokhraustur til leiks eftir magnaðan árangur á Friðriksmótinu og laut í dúk oftar en ætla mætti!

Baráttan á toppnum varð af þessum orsökum gróthörð og Arnar Gunnarsson og Hilmir Freyr Heimisson mættust í úrslitaskák í lokaumferðinni. Hilmir hafði hálfan vinning í forskot en Arnar var kominn á toppinn með góðan „monrad-meðbyr“ eftir að hafa aðeins fengið 1 vinning í fyrstu þremur umferðunum. Arnar kláraði því 6 af 6 og endaði efstur með 7 vinninga af 9.

Hilmir Freyr endaði þrátt fyrir tapið í öðru sæti með 6,5 vinning ásamt Gauta Páli og svo voru nokkrir jafnir með 6 vinninga. Íslandsmeistarinn endaði í 7. sæti með aðeins 5 vinninga.

Gauti Páll og Lenka Ptacnikova reyndust aflakóngar í hraðskákstiga-söfnun en þau hækkuðu bæðu um 50 hraðskákstig á mótinu.

Mótið á chess-results

- Auglýsing -