Spennan í lokaumferðunum hefur verið mikil og allar líkur á því að bráðabana þurfti til að finna sigurvegara á Tata Steel mótinu í Sjávarvík. Indverjinn Dommaraju Gukesh er ásamt landa sínum Vidit á meðal þessara fimm efstu ásamt Nodirbek Abdusattorov sem vann í 11. umferð en tapaði í dag og loks eru Anish Giri og Wei Yi í baráttunni.
Abdusattorov var orðinn einn efstur eftir sigur í 11. umferðinni gegn heimsmeistara kvenna, Ju Wenjun. Úzbekinn fór í taktískar aðgerðir sem báru árangur, fórn á f7 og svo skemmtilegt línurof.
28.Rd5! og fátt er eftir um varnir hjá svörtum útaf hótuninni að skáka á a8
Abdusattorov var því efstur fyrir umferðina en á einhvern ótrúlegan hátt voru forystusauðirnir orðnir fimm eftir 12. umferðina!
Gukesh fékk dauðafæri á að ná forystunni enda var hann með unnið tafl gegn Pragganandhaa. Hann gerði hinsvegar risavaxin mistök þegar hann ætlaði að endurtaka stöðuna í annað skiptið til að ná 40. leik en endurtók hana óvart í þriðja skiptið. Pragga krafðist (á réttan hátt!) og jafntefli niðurstaðan!
And the final twist! Gukesh, with little time, repeats moves and Pragg successfully claims threefold repetition in a position where he's absolutely lost! DRAW!#TataSteelChess pic.twitter.com/2zzpfAZHhu
— chess24.com (@chess24com) January 27, 2024
Anish Giri fékk líka gjöf í skák sinni við van Foreest
van Foreest lék 22.Dc3?? og eftir 22…Hc8 23.Dd2 a4 er hann í vandræðum. Hann fór úr öskunni í eldinn eftir 24.Da5 Df6
Wei Yi er allt í einu kominn í toppsætin eftir tvo sigra í röð. Í 11. umferð lagði hann Max Warmerdam í ótrúlegri skák!
Wei Yi slúttaði svo skemmtilega gegn Ju Wenjun í 12. umferðinni.
39…Hxb4! og þar sem 40.Hxb4 gengur ekki vegna 40.Hxa2 og svo mát á e2 gafst sú kínverska upp. Wei Yi að tefla skemmtilega!
Annar sem teflir skemmtilega er Firouzja. Hann kom Nepo á óvart í 1. leik með 1.Rc3…ekki leikur sem sést oft á hæsta leveli.
Nepo’s reaction to Alireza’s 1.Nc3 ???? #TataSteelChess pic.twitter.com/W6xqGkn9yD
— Anna-Maja Kazarian (@AMKazarian) January 27, 2024
Stjarna dagsins var hinsvegar Vidit sem lagði Abdusattorov og tróð sér inn í pakkann á toppnum. Það sem meira er þá er Vidit nú stigahæsti Indverjinn, orðinn stigahærri en Pragga og Anand! Vidit náði að vinna peð fljótlega úr byrjuninni og Abdusattorov náði ekki að finna nægjanlegt mótspil þannig að Indverjinn gat beitt raðtækni til að klára dæmið!
Staðan:

Ljóst að stefnir í svakalega lokaumferð! Abdusattorov fær hvítt gegn Donchenko sem hlýtur að vera pörun sem hann hefði verið sáttur við fyrirfram í þessu aðstæðum. Wei Yi og Vidit mætast innbyrðis, Gukesh fær svart á Maghsoodloo og Giri hefur hvítt á landa sinn Max Warmerdam. Einvígi virðist öruggt!
Í áskorendaflokki tapaði Heimsmeistari unglinga, Marc’Andria Maurizzi í umferðinni en hans helsti keppninautur Mendonca vann sína skák og þeir eru jafnir með 8,5 vinning fyrir lokaumferðina. Sæti í aðalmótinu 2025 í húfi og því mikilvæg lokaumferð framundan!
Lokaumferðin fer fram á morgun og hefst tveimur tímum fyrr en venjulega, klukkan 12:00














