Kristján Örn Elíasson hefur um margra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Fyrr í vikunni droppðu CAD-bræður, Birkir Karl og Leifur í Skipholtið. Í færslu um þáttinn segir:
CAD-bræðurnir (Chess After Dark) Birkir Karl Sigurðsson forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Heimkaupum og Leifur Þorsteinsson viðskiptastjóri hjá Creditinfo eru gestir Kristjáns Arnar Elíassonar að þessu sinni. Þeir eru báðir skákmenn frá barnsaldri, skákþjálfarar og hafa verið öflugir mótshaldarar undanfarið eitt og hálft ár. Þeir hafa meðal annars skipulagt og stjórnað mótum eins og Bankinn Bistro mótaröðinni þar sem há peningaverðlaun voru í boði, Íslandsmótinu í Fischer-slembiskák, Íslandsmótinu í Atskák sem haldið var á Selfossi, Arena mótaröðinni, hraðskákmóti á Ölveri í Glæsibæi og Sykursalnum. Ekki má gleyma Blush mótinu skemmtilega þar sem vinningshafar voru leystir út með miklu magni af vörum þessarar verslunar hjálpartækja ástarlífsins. Mótið gekk „smurt“ fyrir sig eins og Róbert Lagerman skákstjóri hafði lofað fyrir keppni og voru pokar verðlaunahafa í lok móts stútfullir af smokkum, titrurum og gjafabréfum í verslunina.
Hlaðvarpsþættir þeirra félaga, Chess After Dark, eru orðnir 153 að tölu og er hlaðvarpið orðið eitt stærsta og vinsælasta hlaðvarp landsins.
Hér fyrir neðan má hlusta á þáttinn
- Auglýsing -
















