Önnur umferð á Skákmót öðlinga (40+) fór fram í gærkvöldi í húsakynnum Taflfélagsins í Faxafeni 12. Stigahæsti keppandinn og alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson (2286) vann sína skák og hefur fullt hús ásamt Þorvarði F. Ólafssyni og Kristján Erni Elíassyni sem vann óvæntan en sanngjarnan sigur á kvenstórmeistaranum Lenku Ptacnikovu.
Davíð tefldi fína stöðulega skák með svörtu gegn Bjarna Sæmundssyni. Davíð skipti upp á drottningum og tefldi upp á vald á svörtu reitunum og skildi Bjarna eftir með hvítreitabiskup sem var lokaður inni af eigin peðum. Davíð bætti svo stöðu sína jafnt og þétt og vann sigur.
Þorvarður þurfti að verjast mannsfórn Páls G. Jónssonar og hafði Páll hættulgt spil á köflum en Varði varðist vel og náði sér í sigur.
Óvæntustu úrslit umferðarinnar voru klárlega í skák Kristjáns gegn Lenku. Kristján tefldi af krafti og fékk hættulega sókn gegn Lenku og átti sigurinn hreinlega skilinn!
Kristján Örn og Þorvarður mætast að öllum líkindum í næstu umferð og baráttan heldur áfram næstkomandi miðvikudag.
- Mótið á chess-results
- Skákir á LiveCloud | Lichess















