Skemmtileg skáknámskeið fyrir krakka verður haldið í sumar í Miðgarði í Garðabæ fyrir börn í 1-3 bekk.

  • Vika 24: 10. – 14. júní – frá kl. 13 til 16.
  • Vika 26: 24. – 28. júní – frá kl. 13 til 16.
  • Vika 28: 8. – 12. júlí – frá kl. 13 til 16.

 

Hvert námskeið stendur í 5 daga, hálfan daginn eftir hádegi frá kl. 13 til 16. Þetta námskeið er opið fyrir börn í 1. til 3. bekk.

Umsjón með námskeiðunum hefur Lenka Ptácníková. Lenka er stórmeistari kvenna í skák, margfaldur íslandsmeistari kvenna og hefur mikla reynslu af skákþjálfun barna. Krakkarnir munu læra undirstöðuatriði í skáklistinni auk þess verður farið í leiki og margt skemmtilegt.

Verð fyrir hverja viku er 9900 kr. Systkinaafsláttur í boði. 20%.

Miðað er við að amk. 6 krakkar séu í hverjum hóp. Krakkarnir þurfa að hafa með sér vatnsbrúsa og nesti.

Nánari upplýsingar í síma 6997963 eða í netfangið lenkaptacnikova@yahoo.com

Skráningarhlekkur: https://abler.io/shop/tg

 

- Auglýsing -