Íslenska liðið heldur áfram góðri byrjun á HM öldungasveita í Krakow í Póllandi. Liðið hefur nú unnið allar þrjár viðureignir sínar og með myndarlegum mun einnig! Ísland hafði aðeins misst niður hálfan vinning fyrir umferð dagsins en róðurinn þyngdist þó enda ísraelska sveitin númer 9 í styrkleikaröð með 2212 meðalstig og skartar stórmeistara og alþjóðlegum meistara.

Jón L. Árnason hvíldi í þessari viðureign hjá íslenska liðinu.
Fyrsta skákin til að klárast var skák Þrastar á 4. borði. Þröstur þáði jafnteflisboð í þurru drottningarlausu miðtafli úr Alapin-sikileyjarvörninni
Næsta skák að klárast var skák Helga á 1. borði. Helgi hafði hvítt og fékk líklegast aðeins verra miðtafl og þurfti aðeins að verjast en var aldrei í bráðri hættu. Jafntefli við stórmeistarann Oratovsky niðurstaðan.
Staðan nú 1-1 en hinar stöðurnar litu vel út. Jóhann var alltaf með aðeins betra og Margeir var að ná stjórn á miðtaflinu gegn sínum andstæðing. Ekki löngu síðar komu afdrífarík mistök hjá Ísraelsmanninum.
34…Rxd5? var misráðið og Margeir vann lið í kjölfarið 35.Bxd5 Dxd5 36.Bxg7 Dxc6 37.Bd4 og það er vesen á c-línunni!
Jóhann náði einnig að vinna sína skák. Hann fékk þægilegt tafl gegn stöku peði hvíts. Hélst það fram í endataflið sem var erfitt hjá hvítum.
Í erfiðri stöðu lék Kaspi 48.Rc3?? sem leiðir til koltapaðs endtafls þar sem svartur setur bara pressu á d4 peðið og býr til frípeð á kóngsvængnum. Eina tilraunin var að halda riddurunum inná en vörnin er samt erfið!
Niðurstaðan því ansi góður 3-1 sigur

Ísland og England unnui bæði 3-1 en Bandaríkjamenn unnu aftur 2,5-1,5. Borðavinningar gætu skipt máli í oddastigum en enu að síður er líklegast að innbyrðisviðureignir efstu fjögurra sveita skipti öllu. Ein slík fer einmitt fram á morgun en þá mætir íslenska liðið því enska! Ítalir og Bandaríkjamenn eigast einnig við þannig að 4. umferðin verður stór!

Íslenska sveitin á mótinu er sterk sem endranær. Liðið skipa í borðaröð:
- Helgi Ólafsson
- Jóhann Hjartarson
- Margeir Pétursson
- Jón L. Árnason
- Þröstur Þórhallsson
Íslenka liðið teflir í flokki 50+ þar sem tefldar verða 9 umferðir. Alls taka 31 sveit þátt í 50+ flokknum og er Ísland (2439) númer þrjú í styrkleikaröð á eftir feykisterkri sveit Bandaríkjamanna (2480) og Evrópumeistara Englendinga (2469). Skammt á hæla Íslendinga kemur sveit Ítala (2431) sem er svipuð að stigum og sú íslenska og hefur oft reynst okkur erfið. Þessar fjórar sveitir eiga að vera í nokkrum sérflokki á þessu móti!
















