Vignir Vatnar Stefánsson er aftur kominn á gott skrið í Tékklandi og hefur nú unnið tvær skákir í röð eftir sitt fyrsta tap. Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi Áss Grétarsson eru saman í flokki (A) og svo er Vignir einn í hinum flokknum (B).

Vignir hafði hvítt í skák dagsins og upp kom sikileyjarvörn. Vignir náði að yfirspila andstæðing sinn í miðtaflinu og virtist tefla fína skák.

Vignir núna langefstur í flokknum með 6 vinninga af 7 mögulegum og á sigurinn nánast vísan í flokknum.

Hannes náði að rétta aðeins úr kútnum með sigri í gær og í dag gerði hann jafntefli í sinni skák. Upp kom Spánverji, Hannes fékk aðeins betra ef eitthvað var en staðan leystist upp í endatafl með mislitum biskupum sem virtist alltaf ætla að enda með jafntefli…sem það gerði!

Helgi stýrði hvítu mönnunum gegn fyrrum pólskum landsliðsmanni, Tomas Polak. Peðastaðan læstist mikið í miðtaflinu og keppendur sættust á skiptan hlut.

Í A-grúppunni er Hannes nú með 3,5 vinning en Helgi hefur 2 vinninga af 7.

Áttunda umferð hefst klukkan 14:00 á morgun og hægt að fylgjast með á lichess (sjá tengil að neðan) með því að velja rétta umferð og svo skipta milli A og B flokkanna eftir þörfum!

- Auglýsing -