Frá viðureignin í gær gegn Ítölum. Mynd: Mark Livshitz.

Íslenska liðið á HM öldungasveita í Krakow í Póllandi kom sér í gríðarlega góða stöðu á mótinu þegar það lagði að velli lið Ítala í fimmtu umferðinni. Fyrir umferðina leiddu Ítalir með 8 stig, fullt hús, en Ísland og England höfðu 7 stig.

Þröstur hvíldi í þessari umferð og hafa allir liðsmenn nú hvílt jafnt.

Margeir setti tóninn snemma í viðureigninni með því að gjörsamlega pakka IM Fabrizio Bella (2401) sannfærandi! Margeir fórnaði peði í byrjuninni fyrir sterkt miðborð og braust svo fram á miðborðinu.

14.Hxe7! Dxe7 15.d6! Dd7 16.dxc7 og hvítur fékk frábærar bætur fyrir skiptamuninn sem hann vann fljótlega til baka og svarta staðan gjörsamlega molnaði í kjölfarið.

Sterkur sigur sem gaf liðinu sjálfstraust!

David Alberto, andstæðingur Helga (Mynd: Mark Livshitz)

Helgi kom inn aftur eftir hvíld í fjórðu umferð, orðið á götunni er að hvíld í fjórðu umferð sé hjátrú hjá Helga og vonandi gefur það góð fyrirheit! Helgi hafði hvítt gegn David Alberto, sterkum stórmeistara. Helgi hafði alltaf aðeins meira rými en svartur traustur. Þegar hrókur hvíts komst á c6-reitinn virtist Helgi vera kominn með fulla stjórn á stöðunni. Þegar Helgi eða „Veggurinn“ eins og menn hafa oft kallað hann nær stjórn á stöðunni þá ertu bara að slást við vegg og Alberto tapaði þeirri baráttu, Helgi náði tveimur drottningum og mótspil Ítalans varð aldrei ógnandi. 2-0 fyrir Ísland!

Jón L. tefldi flókna skák gegn IM Lexy Ortega (2386). Jón hafði svart og Lexy fórnaði tveimur peðum í miðtaflinu. Jón virtist alveg á mörkum þess að ná stjórn á stöðunni en Lexy fann fínar leiðir og þegar taflið einfaldaðist varð biskupaparið of sterkt í að fylgja kantpeði Ítalans upp borðið. Ósigur og staðan orðin 2-1

Godena, andstæðingur Jóhanns (Mynd: Mark Livshitz)

Okkur nægði því jafntefli í skák Jóhanns gegn GM Michele Godena (2426). Framan af skák virtist Jóhann í smá vörn og margt í stöðu manna og liðsafla sem minnti á 6. skákina hjá Fischer og Spassky! Jóhann lagaði hinsvegar stöðuna smátt og smátt og Godena sá eina sénsinn í stöðunni að fórna manni fyrir hættulegt frípeð. Jóhann var hinsvegar vandanum vaxinn og sá að hann gat alltaf fórnað riddaranum fyrir þráskák og þau úrslit nægðu einmitt Íslandi, 2,5-1,5!

Gríðarlega mikilvæg úrslit fyrir okkar menn og ljóst að viðureignin við Bandaríkjamenn, sama hvenær hún verður mun ráða úrslitum á þessu móti. Bandaríkjamenn lögðu Englendinga að velli þar sem Melikset Khachiyan tryggði 2,5-1,5 sigur gegn Englendingum.

Íslenska liðið er því í efsta sæti með 9 stig og í góðri stöðu fyrir framhaldið.

Khachiyan var mikilvægur fyrir Bandaríkjamennina.

Á morgun fer sjötta umferð fram, andstæðingur Íslands liggur ekki enn fyrir en líklegast verða það ekki Bandaríkjamenn strax þar sem þeir voru „up-floataðir“ eins og það er kallað í svissneska kerfinu í síðustu umferð og slíkt er ekki hægt að gera tvær umferðir í röð. Fréttinn verður uppfærð þegar andstæðingur liggur fyrir!

** UPPFÆRT ** Ísland mætir sveit Kanada (2182) í 6. umferðinni en þeir eru númer 10 í styrkleikaröðinni og skarta reyndum alþjóðlegum og FIDE-meisturum í sinni sveit.

Mynd: Mark Livshitz

Íslenska sveitin á mótinu er sterk sem endranær. Liðið skipa í borðaröð:

  1. Helgi Ólafsson
  2. Jóhann Hjartarson
  3. Margeir Pétursson
  4. Jón L. Árnason
  5. Þröstur Þórhallsson

Íslenka liðið teflir í flokki 50+ þar sem tefldar verða 9 umferðir. Alls taka 31 sveit þátt í 50+ flokknum og er Ísland (2439) númer þrjú í styrkleikaröð á eftir feykisterkri sveit Bandaríkjamanna (2480) og Evrópumeistara Englendinga (2469). Skammt á hæla Íslendinga kemur sveit Ítala (2431) sem er svipuð að stigum og sú íslenska og hefur oft reynst okkur erfið. Þessar fjórar sveitir eiga að vera í nokkrum sérflokki á þessu móti!

- Auglýsing -