Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson lauk í dag leik á Maplewood Chess Club Invitational, sterku lokuðu móti í Kanada. Vignir varð að játa sig sigraðann í lokaumferðinni gegn sterkasta skákmanni Króata, Ivan Saric. Þrátt fyrir það deildi Vignir öðru sæti á mótinu ásamt einmitt Saric og Aryan Tari.
Vignir hafði svart gegn Saric í dag og fór í sikileyarvörnina en smá hliðarvaríant, 2…a6 hin svokallaði O’Kelly-varíantur. Saric ákvað að skipta yfir í Alapin (c3-afbrigiðið) en þar er ekki víst að …a6 sé alltaf nytsamur leikur.
Vignir lenti í smá klemmu í byrjuninni með að klára sína liðsskiptan og svo fór að Saric náði að blása í herlúðra á kóngsvæng og fara í mjög hættulegar aðgerðir sem báru árangur. Versta skák Vignis á mótinu en sem betur fer eina tapskákin.
Þrátt fyrir tapið endaði Vignir í öðru sæti ásamt þeim Saric og Tari sem verður að teljast glimrandi árangur. Jorden van Foreest varð öruggur sigurvegari með 8 vinninga af 9 mögulegum.
Vignir virðist á góðu skriði þessa dagana og í fínu formi. Skákstig hans eru nú komin upp í 2525 og er hann kominn með gott forskot sem stigahæsti Íslendingurinn þessi dægrin!
- Í beinni á lichess.org
- Chess-results