Jafnteflishrina skall á á efstu borðum á opna San Cristóbal de La Laguna 2024 mótinu á Tenerife. Jafntefli urðu á fjórum efstu borðum, þar með talið í skákum Vignis Vatnars Stefánssonar og Aleksandr Domalchuk-Jonasson gegn sínum andstæðingum. Toppurinn breyttist því lítið. Dagur Ragnarsson gerði einnig jafntefli í sinni skák.
Vignir mætti Kanadamanninum IM Mike Ivanov (2364). Vignir hafði svart og báðir virtust hafa sitt á hreinu þó byrjunin virtist mjög krítísk. Svartur nær snemma gaffli á c2 reitnum og nær hróknum á a1. Hvítur er hinsvegar með greinilegar bætur. Þegar dýpra var komið inn í byrjunina virtist Vignir vera betur undirbúinn ef mið er tekið af tímanotkun.
Vignir náði ekki að gera sér mat úr tímayfirburðunum og hvítur náði að halda í horfið á borðinu. Stöðumat tölvunnar 0.0 og Vignir væntanlega metið það eins og sæst á jafntefli þó hann hafi haft drottningu og frípeð gegn hróki og manni.
Aleksandr hafði svart gegn stórmeistaranum Tomas Sosa (2515) frá Argentínu. Aleksandr valdi Petroffs-vörn og þurfti að þjást aðeins til að halda fengnum hlut. Eins og fyrr í mótinu leitaði hann á náðir mislitra biskupa til að halda endataflinu og aftur gekk það upp.
Dagur gerði jafntefli við alþjóðlega meistarann Daniel Rivera (2255). Dagur virtist fá betri stöðu og góð færi en náði ekki að klára.
Vignir og Aleksandr hafa 4 vinninga af 5 og eru efstir en hópurinn orðinn þéttari á toppnum. Dagur hefur 3 vinninga og aðeins vantað upp á stríðsgæfuna hjá honum.
Í sjöttu umferð á morgun mætir Vignir FM Facundo Vazquez (2388) frá Argentínu en Aleksandr fær FM Francisco Fiorito (2416) en sá hlýtur að eiga einhver fjölskyldutengsl við þann Fiorito sem hann lagði að velli í fjórðu umferð. Dagur mætir heimamanni með 2151 skákstig.














